Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Blaðsíða 31
M é r þ y k i r m j ö g g a m a n a ð v e r a b a r n
TMM 2017 · 1 31
Jú, mjög. Hvernig koma hugmyndirnar til þín?
Úr daglegri reynslu, bókum, bíómyndum, samtölum við aðra og svo bara
með því að setjast niður og byrja að skrifa. Sumar hugmyndirnar geymi ég í
skónum, aðrar bak við eyrað.
Viltu segja mér frá aðferðum þínum? Sköpunarferlinu?
Ég er bara alltaf að skrifa, það er ekkert hátíðlegt við það. Einu sinni
skrifaði ég með pappír og penna og hélt endalausar minnisbækur sem ég
er búinn að safna saman og get flett upp í og fundið eitthvað. Til þess að
komast í gírinn geng ég yfirleitt með eina, tvær ljóðabækur sem ég fíla á mér,
ljóð kveikja á einhverju. Áður fyrr gat ég ekki skrifað á tölvu af því tölvan
æskir þess að maður færi henni eitthvað sem lítur vel út og hún veit meira en
þú – það er truflandi – en nú er mér alveg sama, áhaldið skiptir ekki lengur
máli, gaman væri að skrifa einn daginn skáldsögu á blómapott, ferskeytlu
á gasblöðru og blaðagrein á sturtuhengi. Og ég get bara alltaf og alls staðar
sest niður og skrifað. Mér finnst það gaman. Ég stunda ekki ákveðna rann-
sóknarvinnu af því ég er svo sem alltaf með hugmyndir hvort sem er. Ég er
ekki grúskari; bara orðið fyllir mig velgju. Oftast veit ég fyrirfram hvernig
sögurnar enda og hvernig þær byrja. Það sem er skemmtilegast er að komast
frá a til ö. Áður óttaðist ég að endurtaka mig, en nú lít ég á endurtekninguna
sem hluta af lífinu.
Já, skýin endurtaka sig ekki þó það líti oft út fyrir það. Viltu segja mér frá
bókunum þínum. Fyrst kom út Suss! Andagyðjan sefur (2006), en þá ertu
tvítugur.
Það besta við fyrstu bókina mína er titillinn. Í henni eru rímuð ljóð og
síðan eitthvert svona óráðsíubull. Ég fylgdi henni eftir með hljómplötu árið
2010, sem var samnefnd mér.
Og svo kom ljóðabókin Með mínum grænu augum (2010).
Hún var lokaverkefni mitt í ritlist við Háskóla Íslands. Sigurður Pálsson
skáld var leiðbeinandi minn. Í henni er ýmislegt sem ég get vel lifað með í
dag.
Já, og líka í fyrstu bókinni: þar finnur maður þetta fyrstubókaræði og
ímyndunarafl og orðin að keppast eða atast um plássið. Tunglforlagið gaf
svo út Kvíðasnillingurinn; skáldsaga í hæfilegri lengd (2013).
Já, hún er blanda ljóða og sagna og var sett saman af því tilefni. Rithöf-
undarnir Dagur Hjartarson og Ragnar Helgi Ólafsson spurðu mig hvort ég
ætti eitthvað á lager og ég setti bókina saman. Hún seldist meira að segja upp
á korteri, undir fullu tungli.