Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Page 60

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Page 60
60 TMM 2017 · 1 Flannery O’Connor Síðbúinn fundur fjandvina Soffía Auður Birgisdóttir þýddi Sash hershöfðingi var hundrað og fjögurra ára gamall. Hann bjó hjá Sally Poker Sash, sonardóttur sinni, sem var sextíu og tveggja ára og bað þess á hnjánum á hverju kvöldi að hann fengi að lifa þar til hún hefði útskrifast úr háskólanum. Hershöfðingjanum stóð nokkuð á sama um útskriftina en sjálfur efaðist hann ekki andartak um að hann mundi lifa það að sjá hana. Að lifa var orðið að þvílíkum vana hjá honum að hann gat ekki með nokkru móti ímyndað sér annars konar ástand. Æfing fyrir útskrift var ekki bein- línis skemmtun að hans skapi, jafnvel þótt þess væri vænst að hann sæti uppi á sviðinu í einkennisbúningnum, eins og hún ítrekaði. Hún sagði að nem- endur og kennarar myndu ganga saman fylktu liði í síðu skikkjunum sínum en það myndi enginn komast í hálfkvisti við hann í einkennisbúningnum. Þetta vissi hann fullvel, án þess að hún segði honum það, og hvað varðaði þessa fylkingu þá mátti hún þramma til helvítis og aftur til baka án þess að hann myndi kippa sér upp við það. Hann hafði gaman af skrúðgöngum sem skörtuðu uppblásnum farartækjum með fegurðardrottningum innanborðs; ungfrú Ameríku, ungfrú Daytona Beach og drottingu baðmullariðnaðarins. Hann hafði enga þörf fyrir fylkingar og kennarafylking var álíka niður- drepandi og fljótið Styx, að hans mati. Hins vegar var hann alveg til í að sitja uppi á sviðinu í einkennisbúningnum sínum svo allir gætu horft á hann. Sally Poker var ekki eins sannfærð og hann sjálfur um að hann myndi lifa fram yfir útskriftina. Engin merkjanleg breyting hafði verið á honum síðastliðin fimm ár en hún hafði á tilfinningunni að eins og svo oft áður yrði hún svikin um þessa sigurstund. Undanfarin tuttugu ár hafði hún sótt sumarnámskeið í háskólanum vegna þess að þegar hún byrjaði sjálf að kenna þekktust engar gráður. Í þá daga hafði allt verið eðlilegt, að hennar sögn, en ekkert hafði verið eðlilegt síðan hún varð sextán ára og síðustu tuttugu sumur, þegar hún hefði með réttu átt að njóta hvíldar, hafði hún þurft að burðast með koffort í steikjandi hita til Kennaraskólans. Samt sem áður hafði hún, þegar hún sneri aftur um haustið, alltaf hagað kennslu sinni á nákvæmlega sama hátt og hún hafði lært að ekki ætti að kenna, það var hennar milda hefnd, sem fékk þó ekki fullnægt réttlætiskennd hennar. Hún vildi að hershöfðinginn yrði viðstaddur útskriftina hennar vegna þess að hún vildi sýna hvað hún stæði fyrir, eða, eins og hún orðaði það, „hvað hún
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.