Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Page 110

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Page 110
Þ o r va l d u r G y l fa s o n 110 TMM 2017 · 1 vegar virðist ríkisstjórnin hafa klúðrað tilraun sinni til að draga aðildarum- sóknina til baka þar sem Evrópusambandið getur varla litið svo á að utan- ríkisráðherra geti einhliða dregið til baka aðildarumsókn sem Alþingi sam- þykkti 2009. Ísland er að vísu ekki lengur á opinberum lista sambandsins yfir umsóknarlönd, en þó virðist ekki útilokað að hægt verði að taka aftur upp þráðinn þar sem frá var horfið 2013 óski Alþingi þess. Niðurstaða Í þessari ritgerð hefur verið hugað að samspili milli félagsauðs og efnahags- lífs, þ. á m. efnahagsáfalla, með sérstöku tilliti til nýlegrar reynslu frá Íslandi. Vaxandi ójöfnuður var undanfari bæði Kreppunnar miklu 1929–1939 og Samdráttarins mikla sem hófst á árunum 2007–2008. Eftir stendur spurn- ingin um hvort líta megi á aukinn ójöfnuð sem eina af orsökum þessara efnahagsþrenginga, ásamt öðru, eða hvort ójöfnuður og efnahagsþrengingar eigi sér sameiginlegar orsakir, eða að hvort tveggja eigi við. Síðan var velt upp spurningunni um hvort sömu sögu væri að segja um aðra þætti félags- auðs. The World Values Survey og aðrar heimildir, m.a. Gallup, vitna um djúpstætt og vaxandi vantraust í Bandaríkjunum, Evrópu og víðar, bæði víðtækan skort á trausti til stofnana og skort á trausti milli manna. Bent var á að skortur á trausti er ekki vandamál í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Þeim löndum tókst öllum býsna vel að mæta Samdrættinum mikla meðan Bandaríkin og Ísland, þar sem traust er miklu minna, urðu illilega fyrir barðinu á heimatilbúnum skakkaföllum. Á Íslandi sérstaklega var lítið traust ríkjandi allmörgum árum fyrir hrunið 2008 sem bendir til þess að aukið vantraust, eins og vaxandi ójöfnuður, geti bæði verið undanfari og afleiðing efnahagsþrenginga. Ennfremur virðist mikil misskipting líkleg til að grafa undan trausti og öfugt. Svipuð atriði voru nefnd í sambandi við spillingu. Vinnutilgátan er sú, í stuttu máli, að hnignandi félagsauður geti verið bæði undanfari og afleiðing lítils hagvaxtar og versnandi efnahags, þar á meðal tilfallandi fjármálakreppu. Þannig getur orðið til vítahringur hnignandi samfélags og lítils eða ójafns vaxtar, hugsanlega með langvarandi efnahags- legum afleiðingum sem geta dregið enn úr samheldni samfélagsins með því að grafa undan trausti og ýta undir lýðskrum og aðrar öfgar í stjórnmálum sem geta ógnað lýðræðislegum stjórnarháttum. Ekkert af þessu er samt sem áður nauðsynlegt eða óhjákvæmilegt. Félagsauðinn má styrkja og endur- nýja með því að fjárfesta í menntun og heilbrigði og marka pólitíska stefnu sem dregur úr misskiptingu eigna og tekna. Þannig má endurheimta traust. Sumir höfundar (t.d. Sachs, 2015) mæla með leiðsögn um siðferði, siða- reglum starfsstétta og opinberum ávítum á þá sem bregðast trausti almenn- ings. Bankar brjóta ekki lög heldur bankastjórnendur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.