Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Page 119

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Page 119
H u g v e k j a TMM 2017 · 1 119 Ég var vitanlega ekki smeykur við eitt né neitt, en þegar fram liðu stundir fór ég að velta því fyrir mér hvað kynni að liggja á bak við þessa uppákomu og skoða hana í samhengi við þá vitneskju sem smám saman barst út um málið. Einkum eins og hún er nú rakin í nýútkominni bók Jóns Daníelssonar Sá sem flýr undan dýri. Nú er rétt að gaumgæfa tímatalið. Geirfinnsmálið hófst ári fyrir þetta sím- tal, nánar sagt 22. janúar 1976, þegar lög- reglan tekur að rannsaka dularfullt hvarf Geirfinns Einarssonar í nóvember 1974, og yfirheyrir Sævar Ciesielski. Hann bendlar „Klúbbmenn“ við málið, hið sama gerir Erla Bolladóttir daginn eftir, og að morgni dags 26. janúar eru þeir rifnir upp úr rúmum sínum og hand- teknir. Þá er skriðan komin af stað. Jón Daníelsson talar um „rannsóknar- tilgátu“ lögreglunnar sem hafi verið svip- uð og sá orðrómur sem gekk þá ljósum logum í bænum. En eins og gleggst kemur fram í frásögn hans sjálfs er þetta orð allt of saklaust, það tengir rannsókn- ina við aðferðir vísindamanna sem setja fram tilgátu og rannsaka síðan hvort hún kemur heim og saman við veruleikann. Í raun og veru virðast lögreglumennirnir hafa samið glæpareyfara sem þeir voru ekki aðeins farnir að trúa heldur orðnir mikilvægar persónur í, jafnvel aðalper- sónurnar. Kannske sáu þeir bækurnar fyrir sér í löngum röðum í bókabúða- gluggum sálarkytrunnar. Og þessa glæpasögu þurfti ekki að sannprófa með því að bera hana saman við staðreyndir veruleikans, því að í draumórum sínum vissu þeir að hún var sönn, það þurfti aðeins að lagfæra veruleikann þannig að hann félli að sögunni. Og hún var eitt- hvað á þessa leið: Í Reykjavík og víðar gengur orðrómur um mikla spillingu sem teygi sig upp á efstu stig þjóðfélagsins, í gangi sé víðtækt áfengissmygl og smyglvarningurinn sé seldur í hinum vinsæla skemmtistað „Klúbbnum“ með miklum gróða, en inn í þetta blandist síðan fjármál eins af stærstu stjórnmálaflokkum landsins. En þetta er ekki hægt að rannsaka, því sjálf- ur Dómsmálaráðherrann stendur fast á bremsunni, þéttur á velli. Þá koma til skjalanna hugdjarfir og ótrauðir lögreglumenn, sem láta sér ekk- ert fyrir brjósti brenna. Þeir fara að rann- saka dularfullt mannshvarf, sem flest bendir til að sé af mannavöldum, en eng- inn er þar til vitnis nema maður sem hringdi úr sjoppu í týnda manninn, örstuttu áður en hann hvarf, en hann hefur líka gufað upp og á honum veit enginn nánari deili. Það er þó bót í máli að nokkrar stúlkur sáu hann og geta lýst honum, og eftir því er gerð af honum leirmynd. Hún er sýnd í sjónvarpi, og taka sumir eftir því að henni svipar und- arlega mikið til eins af forkólfum Klúbbs- ins. En úr því verður ekkert meir að sinni. En ári síðar vill svo til að lögreglu- mennirnir eru að rannsaka venjulegt sakamál og handtaka þá smákrimma, einn af þeim sem kynni þó að þekkja leiðina að stórlöxum undirheimanna. Þeir heyra ávæning af því að hann kunni að vita eitthvað um mannshvarfið, og um leið fá þeir sína vitrun. Með því að yfir- heyra þennan smáglæpon og fleiri sem hann er í slagtogi við – kannske með þriðju gráðu aðferðinni, hún er hvort sem er ómissandi þáttur í þessari bókmennta- grein, – fá þeir loks fram játningu: mannshvarfið er í tengslum við áfengis- smyglið mikla sem yfirmenn Klúbbsins standa fyrir. Þeim sem eru yfirheyrðir sem vitni í málinu ber að vísu ekki alveg saman, einn segir að maðurinn hafi drukknað við köfun eftir smyglgóssi, önnur segir að honum hafi verið rutt úr vegi, því hann hafi verið með „stæla“; er
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.