Þjóðarbúskapurinn - 01.08.1983, Side 34
32
Verðlag.
Þróun verðlags á síðasta ári sýnir glöggt þann víxlgang launa, gengis og verðlags,
sem í vaxandi mæli hafði verið festur í hagkerfið. Eftir talsverðan slaka í
verðhækkunum á seinni hluta ársins 1981, sem meðal annars kom fram í því, að
árshækkun framfærsluvísitölu fór úr 60% í upphafi ársins niður undir 40% í lok
þess, urðu verðbreytingar á fyrstu mánuðum ársins 1982 örari. Gætti hér meðal
annars áhrifa þeirra kjarasamninga, sem gerðir voru í lok ársins 1981 og á fyrstu
mánuðum ársins 1982, auk þess sem gengi íslensku krónunnar lækkaði ört á
þessum tíma. Með auknum niðurgreiðslum tókst þó að hafa hemil á hækkun
framfærsluvísitölunnar framan af ári, og um mitt ár mældist árshraði hennar um
46-48%.
Um og eftir mitt síðasta ár gekk ný kjarasamningalota yfir og í kjölfar hennar
urðu verðbreytingar örari. Jafnframt var gengi krónunnar lækkað ört, bæði með
formlegri gengisbreytingu í ágústmánuði svo og hröðu gengissigi á síðustu
mánuðum ársins. Undir lok ársins var tólf mánaða hækkun framfærsluvísitöl-
unnar komin í 60% og stefndi upp á við.
Á mælikvarða framfærsluvísitölu hækkaði verðlag að meðaltali um 51% milli
áranna 1981 og 1982. Hækkunin frá upphafi til loka árs var hins vegar talsvert
meiri, eða tæplega 60%, enda fór verðbólguhraðinn vaxandi, eftir því sem á árið
leið. Aðrir mælikvarðar verðlags sýna nokkru meiri hækkun árið 1982 og veldur
þar einkum, að áhrif niðurgreiðslna, sem voru umtalsverð á fyrri hluta ársins,
vega mun þyngra í neyslugrundvelli framfærsluvísitölunnar en raunveruleg
samsetning einkaneyslunnar gefur til kynna. Þannig er áætlað, að verðlag
einkaneyslu hafi hækkað um 54% að meðaltali milli 1981 og 1982, eða 2% meira
en framfærsluvísitalan. Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði um rösklega 56%
að meðaltali, en hækkunin frá upphafi til loka ársins 1982 var um 64%.
Verðbreytingar í einstökum þáttum framfærsluvísitölunnar hafa undanfarin ár
verið nokkuð misjafnar. Kemur þar ýmislegt til. Breytingar á niðurgreiðslum
búvöru hafa valdið því, að búvöruverð hefur gengið með rykkjum og skrykkjum
Tafla 12. Verðbreytingar í framfærsluvísitölu 1979—1983').
Meöalhækkun
á ári
1980 1981 1982 1983 1979-1983
% % % % %
Landbúnaðarvörur .......................... 90,9 51,8 32,5 101,9 66,9
Fiskur .................................... 67,1 56,9 43,5 84,9 62,4
Aðrar innlendar neysluvörur................ 61,3 48,2 48,5 79,1 58.8
Innfluttar neysluvörur .................... 60,0 50,0 45,4 84,1 59,2
Opinber þjónusta .......................... 43,6 48,5 57,7 107,2 62,5
Önnur þjónusta ............................ 56,8 51,9 52,1 79,8 59,8
Húsnæði ................................... 55,6 54,8 48,0 72,1 57,4
Samtals .................................. 62,6 50,8 45,7 86,6 60,7
1) Miðað er við tólf mánaða hlutfallslegar breytingar í maímánuði ár hvcrt.