Þjóðarbúskapurinn - 01.08.1983, Blaðsíða 50
48
um aðra þætti þjóðarútgjaldanna vegna hinna miklu sviptinga, sem orðið hafa í
þjóðarbúskapnum að undanförnu. í spá Þjóðhagsstofnunar í apríl síðastliðnum
var gert ráð fyrir, að fjármunamyndunin drægist saman um 8% á þessu ári, en
nú er talið líklegt, að samdrátturinn verði meiri, eða um 10%. Spáð er samdrætti
í öllum greinum fjármunamyndunar og ekki hvað síst reiknað með, að mikið
dragi úr innflutningi fjárfestingarvöru. Fyrstu fimm mánuði ársins er innflutn-
ingur fjárfestingarvöru annarrar en skipa og flugvéla talinn hafa verið 15%
minni á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Jafnframt er nú í spánni gert ráð fyrir,
að framkvæmdafé rýrni meira en áður var áætlað vegna meiri verðbólgu en
gengið var út frá í fyrri áætlun.
Heildarútgjöld til fjárfestingar á síðastliðnu ári eru talin hafa numið 8 378
milljónum króna og svarar það til 27% af þjóðarframleiðslu, en það er svipað
hlutfall og árið 1981. Samdráttur fjármunamyndunar að magni til var nokkru
meiri en samdráttur þjóðarframleiðslu. Hins vegar hækkaði verðlag fjármuna-
myndunar um 56,6%, en verðlag þjóðarframleiðslu um 54,5%. I spám fyrir árið
1983 er gert ráð fyrir mun meiri samdrætti fjármunamyndunar en þjóðarfram-
leiðslu. Á hinn bóginn er reiknað með, að verðlag fjármunamyndunar hækki
nokkuð umfram verðiag þjóðarframleiðslu. Engu að síður er spáð, að hlutfall
fjármunamyndunar af þjóðarframleiðslu muni lækka úr 27% í 25,5%, sem er
svipað hlutfall og 1979 og nokkuð undir meðallagi síðustu tíu ára.
Birgða- og bústofnsbreytingar.
Mikil aukning varð á birgðum útflutningsvöru árið 1982. Aukningin nam
tæplega 13% af útflutningsframleiðslunni, en árið áður nam aukningin um 4%.
Birgðaaukninguna má að langmestu leyti rekja til sjávarafurða. Um 70% af
útflutningsvörubirgðum voru í skreið og er áætlað, að verðmæti skreiðarbirgða
hafi numið 750 milljónum króna. Talið er, að skreiðarbirgðir hafi verið 11-12
þúsund tonn um áramót. Uppsöfnun skreiðarbirgða stafar fyrst og fremst af
markaðserfiðleikum í Nígeríu, en talið er, að skreiðarverkun hafi dregist saman
um 30% á síðasta ári. Álbirgðir námu í árslok 34 þúsundum tonna og jukust um
tæplega 14 þúsund tonn á árinu. Birgðir kísiljárns og kísilgúrs lækkuðu hins
vegar nokkuð. Þá er talið, að sauðfé hafi fækkað um 6% árið 1982. Refastofn
loðdýrabúa þrefaldaðist og einnig fjölgaði fiðurfé. Aðrir bústofnar voru
óbreyttir frá fyrra ári. Talið er, að birgða- og bústofnsaukning hafi í heild numið
3,3% af þjóðarframleiðslu á árinu 1982, samanborið við 1,1% árið 1981.
í þjóðhagsspá fyrir árið 1983 er nú gert ráð fyrir, að talsvert gangi á
útflutningsbirgðir. Miðað er við, að skreiðarbirgðir minnki um 3 þúsund tonn á
árinu, en fyrstu fimm mánuði ársins voru flutt út 1 150 tonn. Mjög hefur rofað til
á álmarkaði og verð hækkað verulega. Er því reiknað með stórauknum
álútflutningi og að mjög gangi á birgðir. Talið er, að útflutningsvörubirgðir
minnki í heild um 0,8% af þjóðarframleiðslu ársins, en sem fyrr segir nam
birgðaaukningin í fyrra 3,3% af þjóðarframleiðslu ársins. I þessu felst veruleg