Þjóðarbúskapurinn

Issue

Þjóðarbúskapurinn - 01.08.1983, Page 72

Þjóðarbúskapurinn - 01.08.1983, Page 72
70 teknir upp, þ. e. tollafgreiðslugjald og skattur á innlánsstofnanir1). Allt skýrir þetta hina miklu hækkun ríkistekna á síðasta ári og þar með að hluta hagstæða afkomu ríkissjóðs. í bráðabirgðauppgjöri liggur fyrir skipting ríkisútgjalda eftir málaflokkum árið 1982. Ef geta skal einstakra flokka útgjalda, má nefna, að útgjöld til félagsmála jukust um rúmlega 55% á síðasta ári, eða svipað og útgjöldin í heild, enda vegur þessi málaflokkur mjög þungt í útgjöldum ríkissjðs, um 57%. Innan þessa málaflokks munar mest um útgjöld til heilbrigðis- og tryggingamála, sem eru um tveir þriðju af öllum félagsmálaútgjöldum. Árið 1981 hækkuðu þessi útgjöld afar mikið og talsvert umfram almenna hækkun verðlags, en í fyrra má segja, að þau hafi nánast staðið í stað að raungildi, þ. e. hækkað svipað og verðlag. Að því er varðar þróun annarra meiri háttar útgjaldaþátta ríkisins á síðasta ári er það að segja, að þar sker sig einna helst úr meira en tvöföldun niðurgreiðslna búvara í krónum talið, en sem hlutfall af ríkisútgjöldum námu þær tæplega 9% í fyrra, en um 6V2% á árinu 1981. Eins og áður sagði var rekstrarafkoma ríkissjóðs fremur hagstæð á síðasta ári, þegar á heildina er litið. Framan af árinu hækkuðu tekjur talsvert umfram gjöld og gætti þar einkum áhrifa mikillar innlendrar eftirspurnar, sem skilaði sér í mjög auknum tekjum af innflutningi og söluskatti. Um og eftir mitt árið dró hins vegar verulega úr innflutningseftirspurn, sérstaklega eftir gengisbreytinguna í ágústmánuði, og tekjur af aðflutningsgjöldum drógust saman að raungildi miðað við sama tíma árið áður. Þannig voru tekjur af almennum aðflutningsgjöldum á síðasta fjórðungi ársins aðeins um 20% hærri í krónutölu en á sama tíma árið áður, en verðlagshækkanir voru rétt um 60%. í þessu fólst því um það bil fjórðungs samdráttur að raungildi. Mikil innheimta beinna skatta á síðari hluta ársins, ásamt því að útgjaldaaukningin var hægari en verðlagsbreytingum nam, leiddi hins vegar til þess, að rekstrarafgangur varð hjá ríkissjóði á síðustu mánuðum ársins og þar með árinu í heild. Á síðari hluta árs 1982 tók að draga úr eftirspurn og veltu innanlands. Þessarar þróunar gætir mjög í tekjum ríkissjóðs, það sem af er þessu ári. Fyrstu sex mánuði þessa árs voru innheimtar tekjur ríkissjóðs rúmlega 57% hærri en á sama tíma í fyrra. Aukning gjalda var hins vegar mun meiri, eða rétt tæplega 80%. Með hliðsjón af því, að almenn verðlagshækkun á fyrri helmingi ársins var að meðaltali um 78% miðað við sama tíma í fyrra, felst í þessum tölum um 12% samdráttur í tekjum að raungildi. Ríkisútgjöld virðast aftur á móti hafa verið svipuð eða jafnvel heldur meiri að raungildi en í fyrra. Af þessum sökum var í lok júnímánaðar kominn fram verulegur rekstrarhalli á ríkissjóði, sem nam rúmlega 800 milljónum króna, eða tæplega 13% af tekjum. Til samanburðar má nefna, að á sama tíma í fyrra var rekstrarafgangur hjá ríkissjóði, er nam tæplega 1% af tekjum. Jafnframt varð útstreymi á lánareikningum utan Seðlabanka og á viðskiptareikningum, er nam um 370 milljónum króna, þannig að greiðsluaf- 1) Sjá Annál efnahagsmála á árinu 1982.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Þjóðarbúskapurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðarbúskapurinn
https://timarit.is/publication/1367

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.