Loðdýrarækt - 01.09.1931, Blaðsíða 23
21
stöðumaður tilraunastöðvarinnar i loðdýrarækt.
Sá, sem þetta ritar, dvaldi þar á síðastliðnu
sumri, og sýndi dr. Rochmann félagi voru þá
vinsemd, að lofa eftirleiðis að gefa því allar upp-
lýsingar um framfarir og árangur af starfsemi
tilraunastöðvarinnar.
Eftirlitið með refaræktinni fer þannig fram:
Hvert haust sendir félagið eftirlitsmann, sem á
að líta eftir öllum dýrum lijá félagsmeðlimum.
Ef hann álítur eitthvert dýr ekki gott til und-
aneldis, á það að merkjast á eyra fyrir 15. janúar.
Sé dýrið aftur á móti álitið undaneldisdýr, sem
geti tekið framförum, er það tekið frá og geymt
sér, þangað til næsta eftirlit fer fram, og er
hannað á meðan að selja það eða afkvæmi þess.
Við siðasta eftirlitið er úrskurðað um, hvort
liægt sé að nota það sem undaneldisdýr eða ekki.
Félagið gefur út blað, sem kemur út tvisvar
í mánuði, og ræðir áhugamál félagsins.
Ennfremur liefir það skinnasölu á hendi fyrir
félagsmenn.
Kaup á undaneldisdýrum.
Enginn maður ætti að kaupa undaneldisdýr
óséð. Ef liann ekki sjálfur hefir þekkingu á að
taka þau út ætti hann að hafa mann, sem er
sérfróður um dýrin, til þess að taka þau út
fyrir sig. Því nauðsynina á því, að fá góð dýr
og sérstaklega af góðum stofni, geta menn séð
af því, að skinnaverðið er eins og stendur frá