Loðdýrarækt - 01.09.1931, Blaðsíða 112
110
sagði að það liefði lifandi héra innanborðs, og
var eg beðinn um verðtilboð. Bauðst skipið til
að koma bér við með þá. Varð ekki samið nógu
fljótt með skeytasendingum. Dýr þessi, eða að
minnsta kosti nokkuð af þeim, voru síðar send
norður á Spitsbergen. Síðar befi eg skrifazt á
við félag' það, er gerir út veiðimenn á Austur-
Grænlandi, og hefir samizt svo milli okkar, að
þeir flytji hingað 10—15 dýr næsta sumar. Er
ekki hægt að tiltaka nákvæmlega tölu dýranna,
því að veiði þeirra mun vera mjög hæpin. Hæg-
ast mun vera að handsama unga, en það er auð-
vitað aðeins tilviljun að menn finni þá. Ekki
er enn áltveðið hvort Veiði- og loðdýrafélagið
tekur málið að sér, eða hvort dýrin verða keypt
fyrir framlög frá einstaklingum. Hafa margir
þegar boðizt til að leggja eitthvað af mörkum
til dýrakaupanna. Hefi eg orðið var við mik-
inn áhuga hjá mörgum á þessu máli.
Ekki er heldur ákveðið, hvar dýrin verða sett
á land, ef þau koma. Eg tel víst, að þau geti
lifað hér náttúrunnar vegna. Gróður er hér víða
svipaður og í heimkynnum þeirra, t. d. uppi á
heiðum. Hitar eru hér ekki mikið meiri en þar,
hörkur minni, en þær eru varla lifsskilyrði fyr-
ir þau. Votviðrin munu vera þeim óþægilegust,
en mjög víða hagar svo til, t. d. í hraunum, að
þau geta ávallt fundið skjól. Er ýmislegs að gæta
þegar velja skal verustað handa þeim, svo að
viðbrigðin verði ekki of snögg og að ekki sé
hætta á að þau drepist fyrir handvömm. Meðal