Loðdýrarækt - 01.09.1931, Blaðsíða 55
53
Refurinn er enginn mathákur, en hann kann
vel að gera greinarmun á hvað gott er eða vont.
Því ríður á að komast að því livað þessum geðjast
bezt eða liinum. 125 gr. kjöt er nóg máltið handa
fullorðnum refi og 150 gr. fiskur virðist einnig
vera nægilegt. Sá fiskur, sem mér hefir virzt
mest eftirsóttur, er rauðmagi; hann er ágætis-
fóður, sérstaklega mjólkandi grenlægjum, þær
mjólka svo vel af honum.
Refum er gefið tvisvar á dag, lielzt í ljósaskift-
unum kvölds og morgna; þá er matarlystin bezt.
Fiskur að morgni og kjöt að kveldi, eða grautur
og mjólk að morgni og fiskur að kveldi, alveg
eftir ástæðum. Bóndi, sem slátrar mikið heima,
liefir ávallt nógan mat handa nokkrum refum.
Hestakjöt er ágætt refafóður. Einnig má nota
selakjöt og hvalkjöt, sé hægt að ná í það.
Síðan 1929, er systursonur minn, Gunnar John-
sen, byrjaði að stunda refabú hér hjá mér, hefi
ég liaft tækifæri til að athuga silfurrefi nákvæm-
lega, og liefi ég komist að raun um að þeir eru
mjög skemmtileg dýr að fást við. Þeir eru skyn-
samir og fjörugir, og ég er þess fullviss að öll-
um muni þykja gaman að umgangast þá. Jafn-
framt kemur það til greina að þeir gefa af sér
fínni og verðmætari feldi en nokkur önnur refa-
tegund. Við getum hugsað okkur refaskinn um
1200 kr. að verðmæti, hvílík gersemi það er og
hvílíka ánægju það færir þeim, sem með ást og
umhyggju hefir getað framleitt slíka vöru. Ég
á hér ekki við það að menn eigi að reikna með