Loðdýrarækt - 01.09.1931, Blaðsíða 45
43
að forðast sjúkdóma þessa, er að þrífa vel refa-
girðingarnar: hreinsa daglega og vandlega allan
saur og sótthreinsa eftir föngum. En eins og bent
€r á hér áð framan, virðist þó eina óbrigðula
ráðið vera litlar girðingar með vírgólfi, sem þá
er auðvelt að hreinsa, og innifóðrun að sumr-
inu, þar sem þess er gætt, að refabúrin séu þur,
sag, eða þurt hey borið undir dýrin, og húsin
hreinsuð daglega, með því að skafa gólfin. Nægi-
legt að þvo húsin einu sinni á mánuði, og þá
að brenna þau á eftir að innan með lóðlampa
•eða mótorlampa. Ef húsunum er þannig haldið
þurrum og hreinum, geta sníkjudýraeggin ekki
þrifizt í þeim. Þessir sníkjudýrasjúkdómar eru
algengastir:
a) Spólormar. Stærð 5—15 cm., lifa i
þörmunum og synda í innihaldi þeirra. Sjúk-
dóms-einkennin eru: Dýrin leggja af, einkum
yrðlingarnir, verða vambstór og óróleg, fá stund-
um kvalaköst og jafnvel krampa, setja sig oft
á afturendann og aka sér eftir jörðinni. Stund-
um æla dýrin ormum. Séu refirnir sýktir, verð-
ur að gefa yrðlingunum orma-kapsel þegar þeir
•eru mánaðar gamlir (Nema-kapsel og norsk kap-
isel eru algengust). Kapsel þessi innihalda tetra-
kloretylenkarhonat, sem drepur vel ormana.
Áður en yrðlingnum eru gefin kapsel, er gott
að gefa degi á undan dálítið af magnesíumjólk.
Einangra verður þau dýr, sem á að hreinsa og
svelta, minst einn dag, áður en meðalið er gef-
ið, og auðvitað verður að hreinsa burtu vandlega