Loðdýrarækt - 01.09.1931, Blaðsíða 78
76
urina, bæði í vatni og á landi, en verði þeir
varir við hina minnstu ókyrrð, þjóta þeir óð-
ara inn í grenið eða sefskýlið.
Ekki vita menn með vissu meðgöngutíma kven-
dýrsins, en talið er að hann muni vera um 130
dagar. Fengitíminn byrjar oft strax eftir að kven-
dýrið hefir gotið. Annars er hann á öllum tím-
um ársius og getur því viðkoman orðið talsvert
mikil.
Ungarnir þroskast mjög fljótt, eru orðnir kyn-
þroska úr því þeir eru 5 mánaða gamlir. Kven-
dýrin geta þvi átt afkvæmi þegar þau eru 8
mánaða gömul.
Þessi stuttorða lýsing gefur mönnum nokkra
hugmynd um þetta verðmæta loðdýr og lifnað-
arhætti þess. Þá er að lýsa feldinum nokkuð
nánar.
Hárin eru þrennskonar: Tog, hálftog og þel..
Togið eða vindhárin eru nokkuð stríð og löngr
3 cm. eða lengri, allt upp í 6 cm. að lengd, en
gisin. Hálftogið er um helmingi styttra, en all-
mikið þéttara. Þá er þelið, nokkuð styttra en
hálftogið, fínt, mjúlct og afskaplega þétt. Menn
hafa reynt að gera sér grein fyrir þéttleikanum
með því að telja hárin og hefir útkoman orðið
sú, að á einum fermillimetra liefir meðaltaliS
orðið: Tog 1, hálftog 3, þel 150. Fínasta ull, sem
þekkist, er á svo nefndu merinóft; mestur þétt-
leiki þar er talinn vera 130 liár á fermillimetra.
Hárið á nútríunni er þvi töluvert mikið þéttara.
Þegar dýrið sjmdir eða kafar í vatni, blotna