Studia Islandica - 01.06.1941, Side 46
44
marec 1767 til Islands og rit hans og ferðalag Verdun de
la Crenne 1771 og rit hans.1)
1796 kom út í París Jacques Grasset de Saint-Sauveur:
Habitans de l’Islande í Encyclopédie des voyages. Paris
1796, bls. 5.
1802 kom út í París „Atlas du voyage en Islande, fait
par ordre de S. M. Danoise“ og eru í honum margir upp-
drættir frá íslandi. Er hér átt við ferð þeirra Eggerts
Ólafssonar og Bjarna Pálssonar (Traduction du compte-
rendu de l’exploration de mm. Eggert Olafsen et Biarne
Povelsen, 5 Vol. Paris).
Áður hefir verið minnzt á för Noel de la Mariniere 1820
til íslands, för Jules de Blosseville 1838 og Tréhouart’s
1835 með þá félaga Paul Gaimard og Eugéne Robert og
hinn mikla leiðangur, er gerður var út til íslands árið
eftir, og skal nú reynt að skýra frá helztu ferðabókum á
frönsku um ísland, er birtust á 19. öld og fram til síðustu
tíma.
1819 birtist lítil ritgerð eftir Christophe Paul de la Poix
de Freminville: Relation sommaire d’un voyage fait en
1806 au Pöle boréal, sur la frégate La Syréne, avec une
notice physique et géographique sur l’ile d’Islande (í „An-
nales maritimes et coloniales, Ile partie“. 1819. París, bls.
537—566).
1823 hefir komið út í París: Choix de voyages dans les
quatre parties du monde par J. Mac Carthy — Islande,
tome X. (nefnt af Duterte meðal heimildarrita).
1826 kom út rit í Genéve og París eftir Ch. Victor de
Bonstetten: La Scandinavie et les Alpes, og er þar við-
bætir um ísland (71 bls.), en höfundurinn hefir bersýni-
lega aldrei til íslands komið. Hann segir um íslenzka
glímu, að hún líkist mjög glímu í þeim hluta Sviss, þar
sem þýzka er töluð. í riti þessu eru allskemmtilegar at-
1) í Landfræðiss. III, 93 o. áfr. er skýrt allítarlega frá þessum
ferðum og ritum um þær.