Þjóðmál - 01.06.2020, Side 37
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 35
„Við vorum aftur á leiðinni í hina áttina. Í fyrri
ríkisstjórn [Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-
sonar, innsk. blm.] felldum við niður milli-
þrepið. Það skipti gríðarlega miklu máli,
ekki síst fyrir millitekjufólk,“ segir Óli Björn.
„Sem fyrr segir er nýja þrepið sem nú hefur
verið tekið upp lægra, þannig að við erum
ekki að særa millitekjuhópana eins og gert
var þegar þrepaskiptingin var innleidd. Við
náðum að lækka tekjuskatt í heild sinni þó
svo að einhverjir mjög tekjuháir einstaklingar
hafi þurft að sætta sig við nokkuð þyngri
byrðar en áður. Þegar horft er til tekjutenginga,
vaxtabóta og barnabóta er tekjuskattskerfið
mjög flókið og jaðaráhrifin neikvæð. Við
stöndum frammi fyrir því núna, eftir Covid-19
faraldurinn, að það þarf að horfa á tekju-
módel ríkissjóðs með nýjum hætti. Það þarf
að gera frekari breytingar á tekjuskatti og
ég tel að það sé skynsamlegra að hafa flata
skattprósentu með stiglækkandi skattleysis-
mörkum eftir því sem tekjur hækka. Slíkt kerfi
er í raun þrepaskipt út í hið óendanlega en
með öðrum hætti.“
Óli Björn segir að samhliða þurfi að horfa á
gjaldkerfi fyrirtækja með nýjum hætti.
„Við verðum að nálgast viðfangsefnið, hvort
heldur það er reglugerðaumhverfið, laga-
umhverfið eða skatta- og gjaldaumhverfið,
út frá samkeppnishæfni atvinnulífsins á
alþjóðavísu,“ segir Óli Björn.
„Ég tel að skilningur sé að aukast á því að
hlutverk ríkisvaldsins, og þar með þeirra sem
sitja á þingi, sé að búa þannig um hnúta að
samkeppnishæfni atvinnulífsins sé tryggð, að
það geti greitt ágæt laun og um leið staðið
undir velferðarkerfinu, sem er byggt á grunni
atvinnulífsins.“
Er þá ekki ástæða til að lækka tryggingargjald,
sem er eitt af því sem atvinnulífið kallar eftir?
„Það hefur lækkað um hver áramót sem við
höfum setið við völd, sem er jákvætt,“ segir
Óli Björn.
„Á móti kemur að stöðugt er kallað eftir
frekari útgjöldum, til að mynda til almanna-
trygginga sem tryggingargjaldið fjármagnar
að hluta til. En tryggingargjaldið er vondur
skattur, það er eins vondur skattur og
hugsast getur, verri en margþrepa tekju-
skattur. Þetta er skattur á að hafa fólk í vinnu
og það þarf að finna aðrar leiðir fyrir ríkissjóð
til að fjármagna sig til lengri tíma.“