Þjóðmál - 01.06.2020, Blaðsíða 57
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 55
Þessar nýju vélar gengu undir ýmsum nöfnum
en árið 1965 kom dr. Sigurður Nordal prófessor
fram með orðið tölva, sem festist í sessi.12
IBM á Íslandi verður til
Eftir brunann fluttu Skrifstofuvélar verkstæðið
á Klapparstíg 17 en skrifstofan var þá flutt á
Klapparstíg 27 og umsvifin jukust óðfluga.
Þjónustu við skýrsluvélar fylgdi umstang sem
óx með hverju árinu. Sífellt þurfti að flytja
inn nýjar og dýrar vélar IBM sem Skrifstofu-
vélar leigðu út. Á þeim tíma voru verulegar
takmarkanir á starfsemi erlendra fyrirtækja
hér á landi, en veitt var leyfi til starfsemi
útibús hins alþjóðlega stórfyrirtækis IBM sem
leigði vélar og hugbúnað og veitti þjónustu
á þessum búnaði. Þetta var sami háttur og
IBM hafði á hvarvetna í heiminum.13 Þetta
var sérlega hentugt þar sem íslensk fyrirtæki
hefðu fæst risið undir kaupum á þessum
dýru vélum. Ísland gat þannig notið góðs
af nýjungum í tölvutækninni þrátt fyrir að
markaðurinn hér væri agnarsmár. IBM á
Íslandi leit dagsins ljós og Ottó var ráðinn
forstjóri þess. Það segir sitt um það álit sem
Ottó naut hjá stjórnendum hins alþjóðlega
fyrirtækis að Skrifstofuvélar, í hans eigu,
héldu áfram umboðum fyrir skrifstofutæki frá
IBM. Þetta fyrirkomulag var líklega einsdæmi
hjá IBM í heiminum á þessum tíma.
Ottó var þar með orðinn forstjóri útlends
stórfyrirtækis á Íslandi. Í tímaritsviðtali sagðist
hann kunna því vel: „Í reynd finnst mér þetta
vera mitt eigið fyrirtæki og legg áherslu á að
fyrirtækið geri íslensku þjóðinni gagn. Hér
fæst ég við heillandi verkefni, og þótt álagið
sé oft mikið vegur starfsgleðin upp á móti
því. Það er ánægjulegt að geta veitt öllum
þessum starfsmönnum góða vinnu og taka
þátt í daglegum viðfangs efnum þeirra og
vera eins konar trúnaðarvinur þeirra.“14
IBM þjónaði einkum stórum fyrirtækjum í
upphafi. Fyrstu viðskiptavinirnir voru Háskóli
Íslands, Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkur-
borgar, Samband íslenskra samvinnufélaga,
Reiknistofa bankanna og Loftleiðir. Á
næstu árum bættust við tryggingafélögin,
olíufélögin, bankar og sveitarfélög og alls
fór búnaður IBM til notkunar í hátt á fjórða
hundrað fyrirtækjum.15 Þessu samfara efndi
IBM til námskeiða í notkun tækjanna.
Á verkstæði Skrifstofuvéla á sjötta áratugnum (Ljósm. Pétur Thomsen).