Þjóðmál - 01.06.2020, Page 65
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 63
Ofurmót Magnúsar
Magnús Carlsen er einn eigenda Chess24-
skákþjónsins. Þar hefur verið staðið fyrir fimm
móta syrpu sem ber nafnið Magnus Carlsen
Tour og hafa flestir sterkustu skákmenn
heims látið ljós sitt skína. Sjálfsagt hefur
Magnús ætlað sér sigur í þeim öllum en
það fór öðruvísi í móti númer tvö þegar
hann tapaði fyrir Hikaru Nakamura í undan-
úrslitum. Rússinn Daniil Dubov vann svo
Nakamura í úrslitum.
Þjóðakeppni FIDE
FIDE stóð fyrir þjóðakeppni á Chess.com
þar sem flestir sterkustu skákmenn heims
tóku þátt – nema heimsmeistarinn. Vegna
eignarhluta síns í Chess24 var Carlsen ekki
spenntur fyrir taflmennsku á Chess.com.
Þar var honum reyndar aðeins boðið það
sama og öðrum skákmönnum, sem heims-
meistaranum þótti alls ekki sjálfgefið og
hefur ýmislegt þar með sér. Hann er auðvitað
langdýrmætasti og vinsælasti skákmaður
heims. Kínverjar unnu mótið eftir að hafa lagt
Bandaríkjamenn í úrslitum.
Evrópumótið í netskák
Skáksamband Evrópu hélt EM í netskák. Þar
var teflt í ýmsum riðlum. Fyrst tefldu þeir
stigalægstu í undanrásum. Þeir efstu komust
í úrslitakeppni og þeir efstu í henni komust í
næsta flokk að ofan og svo koll af kolli.
Ríflega 4.000 keppendur tóku þátt í mótinu,
sem hafði samt sína galla eins og við fjöllum
um hér síðar í greininni.
Íslandsmótið í netskák
Netskák á Íslandi blómstraði sem aldrei fyrr.
Íslendingar eru reyndar fyrsta þjóðin sem
hélt landsmót í netskák, en það var árið 1995.
Mótið hefur síðan þá verið haldið flest ár en
í gegnum tíðina á vegum Taflfélagsins Hellis
og síðar Skákfélagsins Hugins. SÍ hélt nú
mótið í fyrsta skipti.
Mótshaldið gekk frábærlega og tóku 120
skákmenn þátt. Hjörvar Steinn Grétarsson
vann sigur á mótinu með sigri á Vigni Vatnari
Stefánssyni í úrslitaeinvígi. Brim studdi
myndarlega við mótshaldið.
Skáksambandið stóð fyrir Norðurlandamóti
skákfélaga þar sem fjöldi norrænna klúbba
tók þátt. Þar vann SSON (Skákfélag Selfoss
og nágrennis) sigur. Víkingaklúbburinn varð í
öðru sæti.
Skáksambandið stóð einnig fyrir Íslands-
mótinu í netskappskák og nethraðskák-
keppni skákklúbba svo dæmi séu tekin.
Landsmótið í skólaskák, sem á sér sögu síðan
1979, var að þessu sinni haldið á netinu!
Dekkri hliðar netskákar
Hér höfum við skoðað það sem tekist hefur vel.
En ekki er allt fullkomið í heimi netskákarinnar.
Einu sinni var mannsheilinn betri en tölvu-
heilinn í skák – en síðan hefur mikið vatn
runnið til sjávar. Maðurinn á í dag ekki
mögu lega gegn skákreiknum. Og venjulegir
skákreiknar eiga svo ekki erindi í Alpha Zero,
sem byggir á tölvugreind, en það er önnur
saga. Lærði skák með því einu að tefla við
sjálft sig.
Svona er sjónarhorn þeirra sem fylgjast með netskákmótum. Svona tefla menn í Grikklandi á Covid-tímum.