Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Blaðsíða 13
Minningabrot úr brúargerð
vorum saman í tjaldi, en Grétar var þetta
sumar vörubílstjóri hjá Sigurði, tengdaföður
sínum.
Byrjað var á grefti fyrir sökklum, undir-
búningsvinnu í vírum og jámum og að laga
vegarómyndina yfir ána, velta steinum og
moka möl í vaðið yfir ána. A kvöldin er eitt
og annað gert. Yfirleitt þvo menn sér eftir
kvöldmat og verka sig til að koma nokkuð
þrifalegir til kvöldkaffis. Menn lesa bækur og
tímarit, leysa þrautir o.m.fl. sér til gamans.
Og eitt kvöldið gengum við út í Hafnarnes.
Mjög misjafnt er hvenær menn fara að sofa.
Til dæmis fer Andrés Björnsson, roskinn
maður, alltaf að sofa um tíuleytið, en við
Grétar og e.t.v. fleiri fara að sofa upp úr mið-
nætti. Tjaldvistin er ágæt, pallur er í hverju
tjaldi, tveir rúmbálkar og olíuvél til upphitunar
og til að hita vatn til þvotta.
Ráðskonur eru þær Ásthildur [Hilla] og
Björg [Sigurðardætur]. Við fáum staðgott
fæði hjá þeim, heimabakað kaffibrauð, kjöt
og fisk eftir margvíslegum uppskriftum og
um helgar hangikjöt eða steik. Matráðsmaður,
hjálparkokk kallaði hann sig sjálfur, er Andrés
[Björnsson]. Hann heggur og saltar kjöt í
kvartil, þvær, snyrtir og saltar fisk, nær í vatn
í skjólum, oft langa leið, og klýfur spýtur í
eldinn.
Fólk hér á Fáskrúðsfirði virðist byggja
afkomu sína mikið á fískveiðum. Flestir
bændur eiga trillur og mikið er af þeim
í þorpinu Búðum. Sjást oft margir bátar á
heimleið inn fjörðinn er líða tekur á daginn.
Að sögn manns nokkurs sem við hittum er
veiði fremur dræm.
Um áttaleytið, föstudaginn 24. júní komu
tveir vörubílar frá Stöðvarfirði, en þeir áttu
að flytja möl. Fimm menn fóru með bílunum,
auk Grétars sem var á Fimmunni. Gekk allt
nokkurn veginn klakklaust til hádegis, en þá
bilaði annar Stöðvaríjarðarbíllinn. Skömmu
eftir hádegi sprakk dekk hjá hinum bíl-
stjóranum, en vegurinn er alltof mjór fyrir
þessa bíla og raunar illfær öllum venjulegum
bílum, einkum í votviðrum.Var þess vegna
aðeins einn bíll eftir [Fimman]. Fóru tveir
okkar heim að brú um fimmleytið, en þrír urðu
eftir í mokstursliðinu og var ég einn þeirra.
Við urðum nokkuð síðbúnir heim, komum
ekki í mat fyrr en undir átta. Á laugardag
var ég í járnabindingu niðri í stöpulmótum,
erilsöm vinna og erfítt að athafna sig.
Fimmtudaginn 30. júní var byrjað að
steypa um morguninn og lokið við seinni
stöpulinn fyrir hádegi. Síðan var farið í járnin
í plötunni. Um kvöldið gerði þoku mikla. Nú
var komið að verklokum við Hvammsá, en
lokið var við að steypa brúargólfíð um sex-
leytið á föstudag.
Flutt frá Hvammsá að Dalsá
Laugardagur 2. júlí. Þennan morgun sváfum
við Grétar yfír okkur báðir og vöknuðum
ekki fyrr en kl. 8. Við vorum ekki seinir að
drífa okkur á fætur og hámuðum í okkur
morgunkaffið í mesta flýti. Síðan fórum við
að taka til dótið okkar, því að flytja átti í dag.
Borðað var kl. 11, en þá var búið að taka niður
tjöldin og setja þau upp á pallinn á Fimmunni.
Um hádegi komu tveir bílar til þess að taka
skúrana og annað dót. Annar bíllinn sat fastur
er leggja átti af stað og töfðumst við til kl.
3. Síðan var lagt af stað og var ég í síðasta
bílnum. Gekk allt stórtíðindalaust eftir það
nema skúrinn var nærri farinn af einu sinni og
svo slitum við niður símavír. Við komum að
Fimmunni fastri í Tunguánni, henni var komið
upp úr og síðan var ekið að tjaldstaðnum við
Dalsá og farið að reisa tjöld. Um hálftíuleytið
lögðum við Grétar og tveir frá Reyðarfirði2 af
stað heim. Sluppum við rétt yfír leirurnar, en
sæta verður sjávarföllum til þess að komast
fyrir íjarðarbotninn. Komum við heim [að
Skipalæk] kl. að ganga tvö.
2 Einar Sigurðsson, ættaður frá Merki, Borgarfirði eystra, og Bóas
Sigurðsson.