Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Síða 55
Sigurður brúarsmiður
Séð heim að Seljamýri. Ljósmynd: Skarphéðinn G. Þórisson. Svarthvíta myndin er af íbúðarhúsinu sem Sigurður
byggði þar, en er nú hrunið. Mvndin er tekin um miðja 20. öld og er í eigu Onnu Kr. Magnúsdóttur.
Þegar Sigurður Jónsson hóf að vinna sem yfirsmiður við brýr á Austurlandi vorið 1946
var ekki tjaldað til einnar nætur. Þá atvinnu stundaði hann ár hvert allt til áramóta 1972-73
og víða hefur ferðamaðurinn handverk hans lyrir augum, nyrst á Gunnarsstaðaá í Bakkafírði,
syðst á Gjádalsá í Lóni og er spölur á milli. Hann stjómaði byggingu 138 brúa frá 4 metrum
að lengd upp í 102 metra, en það er brúin á Gilsá á Jökuldal. Séu hér að auki taldar smærri
rennur og endurbyggingar brúa eru samgöngumannvirki hans alls tæplega 200 talsins.
í spjalli okkar spurði ég Sigurð hvert erfiðasta viðfangsefni hans hafi verið í brúargerð.
Hann svaraði að mestar áhyggjur hefði hann haft af brúnni á Jökulsá á Dal, undan Hjarðar-
haga, en hún var byggð 1946. Þetta er, sem kunnugt er, jámgrindabrú. Hún var sett saman
á nyrðri bakka árinnar. Jámin komu tilbúin en síðan vom þau heithnoðuð saman, þannig að
hvert hnoð var hitað í smiðju, og væri eitthvert hnoð ekki nógu heitt, þegar koma átti því
fyrir á sínum stað, varð að hlaupa með það í smiðjuna og hita á nýjan leik. Að brúnni vom
steyptir stöplar, en sjálf er hún 16 tonn á þyngd. Að setja brúna saman var ekki áhyggjuefni
heldur hitt að draga hana á gljúfrið með þeim tækjum sem til þess vom ætluð, spilum og
kraftblökk. Sigurður taldi að dráttarvírarnir dygðu ekki til að lyfta brúarendanum í stæði sitt
á austurbakkanum. Nú bar svo til, að nokkmm dögum áður en brúin var dregin á gljúfrið
komu á staðinn Einar Jónsson umdæmisverkstjóri vegagerðarinnar á Austurlandi og yfir-
verkfræðingur vegamálastjómar. Varð nú umræða um málið. Yfirverkfræðingurinn taldi að
spilvírarnir, sem festir yrðu í enda brúarinnar dygðu einir sér til að lyfta brúnni í fúlla hæð,
en Sigurður hélt því aftur á móti fram, að annað hvort yrðu að vera yfirvírar eða undirvírar
til að halda henni uppi. Ræddu þeir þetta lengi yfirverkfræðingurinn og Sigurður og sýndist
sitt hvorum. Lauk tali þeirra loks á þá leið, að yfirverkfræðingurinn sagði: „ Jæja Sigurður.
Hafðu þá undirvíra.“
53