Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Side 128
Múlaþing
Grein eftir Guðrúnn Guðlaugsdóttur sem birtist í Morgunblaðinu 6. maí 1990
Vildi ekki trúa, að hann væri dáinn
Ilse Frick segir frá örlögum bróður síns Hans Jóakim
Diirfeld sem fórst við Reyðarfjörð árið 1941
Á uppstigningardag 22. maí 1941 flaug þýsk fíugvél á klettavegg við Reyðarljörð. Fjórir
menn voru um borð í flugvélinni, og fórust þeir allir. Vélin fórst á stað sem var mjög erfítt
að komast að. Nokkur tími leið því þar til breskir hermenn komust á slysstað. Tókst þeim
að flytja líkin til Reyðarijarðar og voru þau grafín þar með nokkurri viðhöfn. Bretar skutu
heiðursskotum til þess að sýna hinum föllnu þýsku hermönnum virðingarvott og eru eldri
bæjarbúum á Reyðarfírði atburðir þessir enn minnisstæðir. Flugmaður þýsku vélarinnar
var Hans Jóakim Durfeld, 31 árs gamall foringi í þýska flughemum. Hinir í áhöfninni vom
Breuer yfirliðþjálfí, Leitz undirliðsforingi og Homisch loftskeytamaður. Mörgum ámm seinna
voru lík þýsku hermannanna grafín upp og flutt í Fossvogskirkjugarð í Reykjavík, í sam-
eiginlegan grafreit þýskra hermanna sem féllu á Islandi á árum seinni heimsstyrjaldarinnar.
Fjörutíu og níu ámm eftir þetta flugslys sit ég inni í stofu hjá gamalli konu í Hagen í
Þýskalandi og handleik málmmerki sem var einkennismerki flugvélarinnar sem fórst hjá
Reyðarfírði. Á merkið er grafíð Emst Heinkel, type HE 11 og númer vélarinnar, 1291 R.
Þetta kalda, gráa málmmerki er það eina sem Isle Frick, systir Hans Jóakim Durfeld flug-
manns, á til minningar um hörmulegan dauðdaga einkabróður síns:
„ Við fréttina um lát hans féll ég alveg saman, veröld mín hrundi til grunna. Bróðir
minn, þessi myndarlegi og glaðlyndi maður, var stolt okkar systranna. Við litumsvo
upp til hans, hann var okkur næstum eins og Guð almáttugur. “
Örvæntingarfúllt líf grárra augnanna er í undarlegu ósamræmi við fastmótaðar bylgjumar
sem hvítt fíngert hár hennar er njörvað í. Niðurbældur harmur ryður sér braut gegnum
dagfarslegt jafnaðargeð. Eg hvarfla augunum til myndarinnar af sjóliðanum unga á sjón-
varpinu sem horflr brosandi augum út í stofuna:
„ Mig dreymdi hann oft eftir þetta. Við vorum alltaf saman þá, systkinin, stundum í
bílferðum eða út á bát, en hann horfði aldrei á mig. Dánir horfa aldrei á lifendur í
draumi. “
Fyrstu fregnir sem Ilse, systur hennar Gerda og Irmgard og Leonóra mágkona þeirra fengu
voru mjög óljósar. Þeim var tilkynnt að Hans Jóakim hefði ekki snúið aftur úr flugi til
126