Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Page 157

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2012, Page 157
Ritfregn Helgi Hallgrímsson Ritfregn Tólf alda tryggð Athugun á þróim stuðlasetningarfrá elsta þekktum norrænum kveðskap fram til nútímans. Höfundur: Ragnar Ingi Aðalsteinsson. Utgefandi: Hugvísindastofnun, Háskóla Islands, Reykjavík, 2010. Höfum við íslendingar einhverja sérstöðu meðal þjóða heimsins? Eitt er nokkuð víst, og það er að hvergi er nú að fínna annarsstaðar í veröldinni jafn sérstakar og merkilegar bragreglur og enn eru í heiðri hafðar í hefðbundinni ljóðagerð á íslandi. Þar er átt við stuðlasetninguna, hina eldfornu arfleifð germanskra þjóða, sem ríkti á því málsvæði langt fram á miðaldir. Það hefúr lengi verið á vitorði þeirra sem á einn eða annan hátt eru að fást við skáldskap, að Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku í Hrafnkelsdal hefur verið að grúska í brag- fræði um áratuga skeið, og birst hafa ýmsar greinar og smárit um það efni frá hans hendi, allt frá Bragfræði fyrir skóla 1987. Um aldamótin hóf hann nám í íslenskum fræðum og skilaði meistaraprófsritgerð 2004, með titlinum Frá Braga til Steins, þar sem hann fjallar um stuðlasetninguna. Síðan hefur stuðlasetningin verið meginviðfangsefni Ragnars Inga, og árið 2010 birti hann niðurstöður rannsókna sinna í 330 bls. bók með ofangreindum titli. Þar Qallar Ragnar um helsta og lífseigasta einkenni íslenskrar kvæðahefðar í 1200 ár. Þar sem höfundur þess er Austfirðingur í húð og hár, þykir mér ekki mega undir höfuð leggjast að kynna þetta merkisrit fyrir lesendum Múlaþings, þó ég sé naumast til þess fær, því að ég hef enga sérþekkingu á þessu sviði. Ekki þarf lengi að fletta þessari bók til að fullvissa sig um að hér er á ferðinni fræðirit sem ekki á sinn líka hérlendis. Höfundur hefúr „skimað“ drjúgan þverskurð af íslenskum skáldskap, frá upphafí til vorra daga, nýtt tölvutæknina við úrvinnslu, og byggir bókina á þeirri rannsókn. „í íslensku notum við orðið stuðlasetning eða stuðlun yfír það þegar sama eða sams konar hljóð er endurtekið í upphafí orða, tvisvar eða oftar.“ (bls. 20) Þessi hljóð kallast Ijóðstafir. Höfundur greinir á milli frjálsrar stuðlunar (allitteration) og reglubundinnar stuðlunar (stavrim, Stabreim). Frjáls eða óregluleg stuðlun er algeng, bæði í kveðskap og óbundnum texta, en reglubundin stuðlun hlítir ákveðnum reglum um það, hvaða ljóðstafir passa saman og hvemig þeir eru staðsettir í braglínum. Meginreglan er að nota þrjá ljóðstafi, tvo í frumlínu hendingar, sem sérstaklega kallast stuðlar, og einn í upphafi síðlínu, sem kallast höfuðstafur; allir verða þeir að vera í áhersluatkvæðum. Þessi regla hefur gilt frá upphafí og var fyrst útskýrð í Eddu Snorra Sturlusonar, um 1220. Dæmi má taka af þessari alkunnu vísu Kristjáns Fjallaskálds. 155
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.