Úrval - 01.04.1948, Side 16
14
ÚRVAL
heldur fáfræði og rangt uppeldi,
sem veldur því, hve margir
menn eru slæmir elskhugar.
Andleg og líkamleg ofreynsla,
sorgir og áhyggjur eða annir
við lausn hinna ýmsu vanda-
mála lífsins geta um stundar-
sakir dregið úr þörf einstakl-
inga af báðum kynjum til
samlífs, sama máli gegnir um
sjúkdóma. En þetta eru stund-
arfyrirbrigði, og það þarf fólk
að vita, því að þá losnar það
undan nagandi ótta við að á-
standið muni vara.
Sjálfstraust og andlegt jafn-
vægi flestra manna er nátengt
heilbrigðu kynferðislífi þeirra,
og vitundinni um, að þeir séu
hlutgengir á því sviði — og á
það ekki hvað sízt við um karl-
mennina. Minnimáttarkennd,
deyfð, tómleikatilfinning og ein-
hver óljós ótti sækir oft á menn,
sem eiga í kynferðislegum erfið-
leikum. Það. er eins og hugsanir
þeirra snúist stöðugt um hinn
kynferðislega ósigur; þetta ger-
ir þá óörugga, einnig á öðrum
sviðum lífsins og eykur vitan-
lega kynferðisóttann. Þetta
verður að hringrás, eitt leiðir af
öðru og þannig verður ástandið
varanlegt. Karlmennirnir verða
oftast þunglyndir, konurnar
vanstilltar og aðfinnslusamar.
Þó virðist svo sem konumar
sætti sig betur við ástandið,
finni aðra útrás fyrir tilfinning-
ar sínar og yfirfæri ást sína á
börnin — oft og tíðum þeim til
tjóns.
Barnlausar, kyndaufar konur
verða að bjargast á annan hátt,
en því miður leita þær oft útrás-
ar í taumlausri þátttöku í veizlu-
lífi, í sífelldu daðri við aðra
karlmenn sem einskonar upp-
bót, ofuráhuga á klæðnaði og
slúðursögum o. fl. Þó taka sum-
ar sér nytsöm áhugamál, sjálf-
um sér og öðrum til gagns og
eyða þannig tómleikatilfinning-
unni.
En sem sagt: manngerðirnar
eru svo margvíslegar á þessu
sviði, að ekki er unnt að gefa
fastar reglur, og oft hættir
mönnum til að gleyma þeim
mikla fjölda, sem sættir sig við
örlög sín án mikilla erfið-
leika.
Þeir, sem hafa hneigðir til
einstaklinga af sama kyni —
hinir svo nefndu kynvillingar
— ættu yfirleitt ekki að giftast.
Sumir þeirra giftast, af því að
þeir álíta, að það muni bæta að-
stöðu þeirra og síður verði tekið
eftir þeim. Það er engin lausn.