Úrval - 01.04.1948, Blaðsíða 105
ANNA OG SlAMSKONUNGUR
103
móðir hans. því að skuggi
kvennabúrsins féll jafnvel á
hjörtu barnanna.
Þegar þær Anna höfðu kynnst
nokkuð, bauð Son Klin kennslu-
konunni að heimsækja sig. Eft-
ir það kenndi Anna henni oft í
lítilli og skrautlausri íbúð henn-
ar. En hún var ávallt jafn dul
og fátöluð um hagi sína, og það
var ekki fyrr en Anna heimsótti
hana helgidag nokkurn, að
framkoma hennar breyttist.
Þegar ambáttin leiddi hana inn
í litla herbergið, sem þær höfðu
kallað ,,lesstofuna“, sá hún að
vinkona hennar kraup í bæn í
næsta herbergi. Á altari fyrir
framan hina krjúpandi konu
stóð gyllt Búddalíkneski, en
beggja vegna héngu myndir af
konimginum og syni hennar.
Herbergið var klætt hand-
máluðu veggfóðri í síömskum
stíl. Á það voru máluð tré, sum
uppistandandi, en önnur eins og
rifin upp með rótum; það var
eins og þau bærust áfram með
einhverjum voldugum straumi,
dauð og líflaus. Sumstaðar voru
þau þakin blómum. Son Klin
bað með lokuð augu, en andlit
hennar var uppljómað af duld-
um fögnuði, sem gerbreytti
svipnum. Það var eins og hún
væri í beinu sambandi við Ánd-
ann eilífa, og væri óminnug alls
annars. Anna beið þögul, þar
til bænagerðinni var lokið.
Eftir stundarkorn kallaði Son
Klin á Önnu og bað hana að
koma inn í helgidóminn. Anna
settist á gólfið við hlið hennar,
fyrir framan altarið. „Sástu
veggfóðrið mitt?“ spurði hún.
,,Ég sá það þegar ég kom
inn,“ svaraði Anna. „Eru þetta
ekki fullskærir litir fyrir bæna-
herbergi?“
„Ég sé, að þú skilur ekki þýð-
ingu þess,“ sagði Son Klin, og
fór að skýra táknmyndimar
fyrir Önnu, á blendingi af
ensku og síömsku: „Þetta stóra,
græna tré þarna,“ sagði hún og
benti með hendinni, „er eins og
ég var, þegar ég var ung og fá-
vís, og þráði jarðneska sælu og
metorð. Ég var nefnilega færð
konunginum að gjöf, og hugsaði
ekki um annað en það, hve
voldug ég væri og hve auðug
ég yrði. Og þarna sérðu mig
lúta, lauf mín eru að sölna og
bráðum fell ég um koll. Og
þarna er ég rifin upp með rót-
um af auðmýkingu og harmi.
Og þarna berst ég áfram með
straumi fljótsins, til glötunar-
innar, en smámsaman tekst litlu