Úrval - 01.04.1948, Side 39
KVIKMYNDAEFTIRLITIÐ 1 YMSUM LÖNDUM
37
myndin Ekstase og Guös grœnu
engi. Blockade, sem gerist í
spænsku borgarastyrjöldinni,
var bönnuð í 11 löndum, þar á
meðal Portúgal, Malakkaskaga,
Tyrklandi, Júgóslavíu og Perú,
sem sjálfsagt er eina landið, þar
sem ein reglan hljóðar svo:
„Leyfð ungum stúlkum". Mörg
lönd bönnuðu Játningar nazista-
njósnara, þar á meðal Noreg-
ur árið 1939.
1 Póllandi, Rúmeníu, Júgósla-
víu, Ungverjalandi, Tyrklandi og
fleiri löndum, þar sem meira eða
minna fasistiskar stjórnir sátu
að völdum, gættu yfirvöldin þess
vandlega, að skera burtu atriði,
sem voru til þess fallin að draga
úr virðingunni fyrir yfirvöldun-
um, einkum hernum, eða eins
og segir í sumum reglugerðum:
„Atriði, sem sýna skort á virð-
ingu fyrir hinum ráðandi stétt-
um“.
í myndinni Show Boat syng-
ur Paul Robeson meðal annars
hið kunna negraljóð 01’ Man
River. Níu línur í þessu Ijóði
varð að skera burtu, áður en
myndin fengist sýnd í Póllandi.
Röksemdin var sú, að þessar
línur fælu í sér „hvatningu til
stéttabaráttu, sem mundi verða
misskilin og gæti vakið reiði hjá
almenningi".
f Hollenzku Austur-Indíum,
Ungverjalandi, Júgóslavíu, Rú-
meníu og Egyptalandi voru skor-
in burtu atriði úr Maria Antoin-
etta, sem sýna reiði fólksins, og
auðmýkingu, sem konungsfjöl-
skyldan sætir. í Grikklandi var
Fanginn á Zenda bannaður
vegna atriða, sem „drógu dár að
konungdóminum' ‘.
Þegar Hollywoodfélagið War-
ner Brothers hafði lokið við að
gera kvikmynd um hina ill-
ræmdu fanganýlendu Frakka í
Guyana (Djöflaeyjuna) árið
1939, barst því tilkynning frá
stjórn Frakklands um, að ef
myndin yrði ekki dregin til baka,
mundi engin Warner-kvikmynd
verða sýnd í Frakklandi í tvo
mánuði. Félagið beygði sig.
Margar myndir millistríðsár-
anna, sem boðuðu frið og andúð
á styrjöldum, voru bannaðar í
ýmsum löndum. Ein þeirra, Vér
héldum heim, eftir bók Re-
marques, var bönnuð í Grikk-
landi. Ungverjar fengu að sjá
hana eftir að klipptar höfðu ver-
ið úr henni eftirfarandi setning-
ar: „Ég er pólitískur flóttamað-
ur. f heimalandi mínu er ekki
vinsælt að tala um lýðræði."