Úrval - 01.04.1948, Síða 49
ÍLoikir bamanna spegla vandamál þeirra
og viðhorf tii umhverfisins.
Börnin sálgreina sig sjálf.
Grein úr „Magazine Digest“.
jC’LÓRA, sem var þriggja ára
■*" gömul, var orðin kenjótt og
duttlungafull. Hún vildi ekki
borða á daginn, en þegar for-
eldrar hennar voru háttaðir á
kvöldin, fékk hún óstjórnlega
matarlyst.
Hún vakti þau með orgi, og
auk þess vætti hún oft rúmið.
Þau reyndu öll hugsanleg ráð,
til að venja barnið af þessum
ósið, en árangurslaust.
Flóru virtist þykja vænt um
litlu systur sína, og foreldrarnir
töldu því, að afbrýðisemi gæti
ekki verið ástæðan. En sálfræð-
ingurinn var ekki á sömu skoð-
un. Hann gerði tilraun með litlu
stúlkuna, — lét hana leika sér
að brúðuhúsi. Þessi brúðuhús
eru þaklaus, og búin alls kon-
ar húsgögnum og brúðum, sem
eiga að tákna heimilisfólkið.
Flóru var gefin mömmubrúða
og pabbabrúða, telpubrúða og
ungbarnsbrúða. Það fyrsta, sem
hún gerði, var að setja allar
Jbrúðumar í sama rúmið. Síðan
þreif hún ungbarnsbrúðuna,
hirti hana fyrir að vera óþæg,
setti hana inn á salernið í brúðu-
húsinu og þóttist skola henni
niður.
Það næsta, sem Flóra gerði,
var að leggja telpubrúðuna milli
,,pabba“ og „mömmu“, og þeg-
ar því var lokið, brosti hún á-
nægjulega. Og hún hafði gilda
ástæðu til að brosa, því að nú
var ungbarnið ekki að flækjast
fyrir lengur og hún var ein um
foreldra sína.
Ástæðan var því afbrýðisemi.
En barnið hafði blygðazt sín fyr-
ir þessa afstöðu, það hafði leynt
afbrýðiseminni, en gremjan
brotizt út á annan hátt. Þegar
foreldrarnir vissu um orsökina,
gerðu þau ráðstafanir til úrbóta,
og eftir mánuð voru kenjarnar
horfnar.
Með því að fylgjast vel með
börnum sínum, geta foreldrarnir
lært að þekkja þau og skap-
brigði þeirra — hræðslu þeirra,
gremju, ástúð, efasemdir og af-