Úrval - 01.04.1948, Side 69
ÆVINTÝRALEGAR TÖLUR
67
prenta allt, sem skrifað hefur
verið frá upphafi ritlistar —
hverja einustu setningu, í
bundnu máli og óbundnu, hverja
ritstjórnargrein og auglýsingu
blaðanna, hvert vísindarit, hvert
ástarbréf, hvern pöntunarseðil
til kaupmannsins ....
Vélin myndi ennfremur prenta
allt það, sem prentað verður á
ókomnum öldum. Á pappírnum,
sem kæmi úr pressunni mjmd-
um við geta lesið kvæði frá þrí-
tugustu öld, vísindalegar upp-
finningar framtíðarinnar, ræður
sem ekki hafa enn verið flutt-
ar og frásagnir af umferðaslys-
um eldflauga í millihnattaferð-
um árið 2344. Það kæmi fram
síða eftir síðu af smásögum
og stórum skáldsögum, sem enn
eru óskrifaðar, og bókaútgefend-
ur, sem hefðu slíka vél í kjall-
aranum hjá sér, þyrftu ekki
annað en að velja og gefa út
það nýtilega úr öllum ruslinu —
og það er einmitt það, sem þeir
gera hvort sem er.
Af hverju er ekki hægt að
framkvæma þetta ?
Við skulum telja fjölda lín-
ánna, sem slík vél prentaði, ef
allar mögulegar samsetningar
bókstafanna og rittáknanna
væru notaðar.
f stafrófinu eru 36 bókstafir,
10 tölustafir (0, 1, 2 ... 9) og
14 venjuleg rittákn (greina-
merki), samtals 60 tákn.
Setjum svo, að vélin hafi 65
hjól, sem samsvara 65 sætum
í venjulegri prentaðri línu.
Prentaða línan getur byrjað á
hvaða tákni sem er, og eru því
möguleikarnir 60. En fyrir
hvern af þessum 60 möguleik-
um eru 60 möguleikar fyrir
næsta sæti í línunni; þ. e. 60 x 60
= 3600 möguleikar.
Fyrir hverja tiltekna sam-
setningu fyrstu tveggja bókstaf-
anna, getum við valið á milli 60
mögulegra tákna í þriðja sæti
o. s. frv. Fjöldi mögulegra sam-
setninga í allri línunni er sem
hér segir: .
65 sinnum
60 x 60 x 60 x . . . . x 60
eða
60°',
sem er hér um bil sama og
10130.
Til þess að skilja, hve geysi-
lega há þessi tala er, skulum við
setja sem svo, að sérhver frum-
eind í heiminum sé sérstök
prentvél, þannig að við höfum
3.1074 prentvélar í gangi sam-
tímis. Setjum ennfremur svo, að
allar þessar vélar hafi starfáð