Úrval - 01.04.1948, Qupperneq 71
1 STUTTU MÁLI
69
Nú var hafin leit að einhverri
náttúrlegri fæðutegund, sem
gæti varið tennumar gegn þess-
ari sýmeyðingu. Vottur af
flúorsamböndum var reyndur,
en kom að litlu haldi. Eftir
tveggja ára leit uppgötvaðist
af hreinni tilviljun, að ögn af
oxalsýrusalti í súrum drykkjum
vemdaði tannglerunginn alger-
lega gegn eyðingaráhrifum sýr-
unnar. Nú er það vitað, að oxal-
sýrusölt era í allmörgum fæðu-
tegundum, en langmest í rabar-
bara og spínati.
Eftir að McCay prófessor
kom aftur til Corneli háskól-
ans hélt hann áfram þessum til-
raunum, og vinnur nú að því að
komast að raun um, hve mik-
inn rabarbarasafa þurfi að
blanda saman við sýrudrykki til
þess að tönnunum sé ekki hætta
búin. Rabarbari hefur lengi
verið viðurkenndur sem hægða-
leysandi og bragðgóð fæða, svo
að engin hætta er á, að hann
dragi úr áhrifum sítrónusafa á
hægðartregðu, þó að honum sé
blandað saman við.
Önnur tillaga, sem miðar að
því að koma í veg fyrir tann-
skemmdir hefur einnig komið
fram í Bandaríkjunum. Hún er
sú, að blanda bragðlausu efni
saman við allan sykur um leið
og hann er hreinsaður. Af
þrjátíu og einu efni, sem reynd
hafa verið, hefur „glycerol alde-
hyde“ reynzt bezt. Það er syk-
urtegund (triose-sykur), sem er
náttúrlegt efni í öllum vöðvum.
Það er skaðlaust, hefur ekki
ónotalegt bragð, og blandast
auðveldlega sykri.
Tannskemmdir stafa tíðum af
sýrum, sem myndast við gerjun
sykurs í munninum. Ef þessar
sýrur eyðast ekki fljótt, tæra
þær glerunginn á tönnunum. I
munnvatninu er sýrueyðandi
efni, en oft nægir það ekki til
að eyða sýrunni nógu fljótt.
Glycerol aldehyde mundi koma í
veg fyrir gerjunina í munnin-
um, ef það væri sett saman við
sykurinn. Frekari tilraunir
munu þó nauðsynlegar áður
en almennt yrði farið að blanda
því saman við sykur, og auk
þess þyrfti breytingar á fæðu-
og lyfjalögum Bandaríkjanna,
þar sem megnið af sykurhreins-
un heimsins fer fram.
— Science News Letter.
Kríllinn lians Kenneth Smee.
Kenneth Smee heitir enskur
verkfræðingur, sem byggt hefur
litinn bíl, er kostar um sjö aura