Úrval - 01.04.1948, Side 100
ÚRVAL
98
ætti að fara til hallarinnar þeg-
ar í stað. Þetta var á fimmtu-
degi, þeim degi vikunnar, sem
helgaður er guði vizkunnar,
Brihaspati, og því ákjósanlegur
fyrir formlega skólasetningu.
Konungurinn tók Önnu og
Louis vel og virtist hafa gleymt
reiði sinni frá fyrra fundi
þeirra. Hann bauð þeim að setj-
ast. Síðan var þögn góða stund.
Þá klappaði konungurinn saman
lófunum og fjöldi ambátta
þyrptist inn í salinn. Konungur-
innn mælti eitt eða tvö orð,
ambáttirnar hneigðu höfuð sín
í undirgefni og hurfu síðan á
brott. Þegar þær komu aftur,
skriðu þær fimlega eftir gólfinu
og báru öskjur með skrifspjöld-
um, blýöntum, bleki, pennum og
mörgum eintökum af hinu kunna,
bláa stafrófskveri Websters,
og þetta lögðu þær allt á langt,
útskorið skrifborð. Aðrar konur
komu inn, einnig skríðandi. Þær
báru logandi kerti og ker með
hvítum lótusblómum, sem þær
settu líka á borðið, en við það
stóðu yfir tuttugu gylltir stól-
ar. Allt virtist hafa verið undir-
búið af mestu nákvæmni.
Tónar frá ósýnilegri hljóm-
sveit bárust um salinn. Það var
merki þess, að prinsarnir og
prinsessurnar, sem áttu að
verða nemendur hennar, væru
að koma. Börnunum var skipað
í röð eftir aldri. Fyrst kom
telpa, á að gizka tíu ára gömul.
Önnu várð starsýnt á silkimjúkt
hörund hennar, yndislegt vaxt-
arlag og dreymin augu. Konung-
urinn tók blíðlega í hönd hennar
og kynnti hana Önnu með þess-
um orðum: „Enska kennslukon-
an. Ying Yaowalak, frumburður
meðal kvenna.“ Barnið heilsaði
Önnu með stillingu og virðu-
leik. Hún tók báðar hendur
Önnu í sínar, laut höfði og snart
þær með enninu. Þvínæst fór
hún á sinn stað, eftir bendingu
frá konunginum. Þannig voru
öll börnin, eitt af öðru, leidd
fyrir kennslukonuna, og þegar
það síðasta var komið á sinn
stað í hinni krjúpandi röð á
gólfinu, þagnaði hljómlistin.
Konungurinn ávarpaði síðan
börnin með nokkrum orðum, og
þýddi jafnframt mál sitt fyrir
Önnu. ,,Kæru börn“, sagði hann,
„það er ósk vor, að þið lærið
ensku ekki síður en móðurmálið.
Af því að þetta er enskur skóli,
verðið þið að læra enskar um-
gengnisvenjur og siði. Þið megið
sitja kyrr í stólum ykkar, þegar
ég kem í eftirlitsferð í skólann