Úrval - 01.04.1948, Blaðsíða 123

Úrval - 01.04.1948, Blaðsíða 123
ANNA OG SlAMSKONUNGUR 121 senda dómstólnum þessi fyrir- mæli min eftir nokkrar mínútur. Þér þurfið ekki að fara þangað aftur þér ættuð heldur að fara í skólann.“ Anna þakkaði honum ekki — viðbjóður hennar var of mikill. Hana verkjaði í höfuðið og var ómótt. Hún fór án þess að mæla orð. 1 stiganum mætti hún ein- um af kvendómurunum. Hún var að færa konunginum málsskjöl- in. Anna fór ekki í skólann, heldur heim. Hún var svo mátt- farin, að hún varð að leggja sig fyrir. Hún vaknaði klukkan tvö við hávaða og mannamál útifyrir. Hún leit út um gluggann og sá, að verið var að reisa tvo af- tökupalla á torginu rétt hjá húsi hennar. Verkamenn voru að reka niður staura og koma fyrir einkennilegum áhöldum, undir eftirliti embættismanna. Hópur karla, kvenna og barna hafði þyrpzt að, til þess að sjá hvað um væri að vera. Fólkið leit út fyrir að vera mjög æst. Anna kallaði á þjónustustúlk- una og spurði hana, hvers vegna væri verið að gera þessar ráð- stafanir og hvað væri á seiði. Stúlkan sagði, að pynda ætti prestinn og prinsessuna, til þess að bæta siðgæði almennings. Konungurinn hafði breytt á- kvörðun sinni! Anna frétti síðar, að hún hefði varla verið kominn út frá honum, þegar málsskjölin voru lögð fyrir hann. Þegar hann las þau, varð hann gripinn ofsa- reiði, sem beindist ekki síður að Önnu en hjákonunni og prest- inum. Hann skipaði svo fyrir,. að hinir tveir Síamsbúar skyldu pyndaðir opinberlega og síðan líflátnir, en hann gat ekki refsað kennslukonunni með öðru en því, að láta reisa aftökupallana rétt fyrir neðan glugga hennar.. Klukkan tæplega þrjú var búið að koma fyrir pyndingarverk- færunum. Skömmu síðar heyrð- ist lúðraþytur og birtist þá kon- ungurinn og hirð hans. Kven- lögregluþjónar í rauðum skikkj- um gullskreyttum, skipuðu sér í hring umhverfis hjákonumar. Skyndilega rak mannfjöldinn upp óp. Varðmenn voru að koma með fangana. Presturinn, sem varla gat dregizt áfram, var dreginn upp á aftökupallinn til hægri handar, en Tuptim gekk stillilega upp á hinn pallinn og þurfti ekki stuðnings við. Hún horfði róleg á mannþyrpinguna, sem reyndi að mjaka sér nær til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.