Úrval - 01.04.1948, Side 131
Gagnslaus fróðleikur.
Framhald af 4. kápusíðu.
Tampa í Flórída, þyngsta kona,
sem vitað er um að uppi hafi ver-
ið, vóg tæp sjö hundruð pund og
mældist 190 sm um mittið og 227
sm um mjaðmirnar. • Fitan í
hvalmjólk er tíu sinnum meiri en
í kúamjólk. • Anna Englands-
drottning eignaðist 17 börn og
lifði þau öll; aðeins sex þeirra
lifðu svo lengi, að hægt væri að
skíra þau, og það sem lengst lifði
náði ellefu ára aldri. • Hæsta tala,
sem vitað er með vissu að er frum-
tala (ódeilanleg með annari tölu)
er 170 141183 460 469 231 731 687-
303 715 884 105 727. • Viðurinn úr
einu hinna risavöxnu rauðtrjáa i
Kaliforníu, nægir til að byggja 40
fimm-herbergja timburhús. • Til
er arabiskt máltæki, svohljóðandi:
„Allir menn álíta sínar lýs gazell-
ur". • Reykingar voru bannaðar
í Rússlandi á þrettándu öld; ef
menn urðu uppvísir að því að
reykja, var skorið af þeim nefið.
• Sítrónusafa má nota sem ósýni-
legt blek. Skriftin kemur í ljós,
ef hún er hituð fyrir framan eld.
• Stóra Bretland mun vera eina
ríkið í heiminum, sem hefur ekki
nafn sitt á frímerkjum sinum. •
Sir Isaac Newton tók aðeins einu
sinni til máls, þegar hann var
þingmaður; hann stóð upp og bað
um, að glugga fyrir aftan sig yrði
lokað. • Það er sama hve stóra
og hve þunna papppírsörk þú hef-
ur, þú getur aldrei brotið hana
saman oftar en átta sinnum. *
Bezta ráð til að ná blekblettum
úr líni er að nota súrmjólk. •
1 Kaliforníu er tré, sem talið er
vera 4000—5000 ára gamalt. •
Skógarbirnir hafa sézt klifra upp
í símastaura í leit að hunangi.
Þeir tóku hvininn i þráðunum fyr-
ir býflugnasuð. — • Nýgotnir
músarungar ferfalda þyngd sína
á einum sólarhring. • Fyrsti við-
reisnarráðherrann í fyrsta ítalska
ráðuneytinu, sem stofnsett var eft-
ir innrás Bandamanna 1944 hét
Signor Ruini (Ruin þýðir rúst). •
Hægt er að láta saumnál fljóta
með því að leggja hana varlega
á yfirborð vatnsins. • Ellefu kon-
ur og fjórtán karlmenn hafa synt
yfir Ermarsund. • Stærsti lax,
sem vitað er að veiðst hafi á Eng-
landi, vóg 60 pund; það var veiði-
þjófur, sem veiddi hann í ánni
Nith árið 1812. • Ef gini á froski
er haldið opnu, kafnar hann. •
Egg má geyma óskemmd að
minnsta kosti sex mánuði, með
þvi að snúa þeim við á hverjum
degi. • Franski rithöfundurinn
Flaubert kallaði eitt sinn George
Sand starfsystur sina „stóra belju
fulla af bleki". • Yfir 152 000 flug-
vélar hófu sig til flugs og lentu
á La Guardia flugvellinum i New
York árið 1947. • Enginn af for-
setum Bandaríkjanna hefur verið
kaþólskrar trúar.