Úrval - 01.04.1953, Blaðsíða 42
Sú almenna skoðun, að menning nútímans mlði að
sköpun múgliugsunar, er liættuleg bábilja.
Múgsálin og menning nútímans.
Grein úr „Harper’s Magazine",
eftir Joyce Cary.
SÉRHVER ÖLD hefur sína
sérstöku bábilju. Á átjándu
öldinni töluðu menn um hinn
göfuga villimann, á nítjándu
öldinni um blessun tæknifram-
faranna, og nú, á þeirri tuttug-
ustu, tölum við um að menning
nútímans stefni að því að steypa
alla menn í sama mót, þurrka
út einstaklingseðlið, gera allt
mannkynið að einni múgsál.
Okkur er sagt, að mennirnir
séu sífellt að verða líkari hver
öðrum, að skólakerfi, skemmt-
anafyrirkomulag og fjölfram-
leiðsla á öllum sviðum sé að
eyðileggja einstaklingseðlið —
breyta menningunni í dauð-
hreinsað munaðarleysingjahæli
þar sem allar hinar glötuðu smá-
sálir hugsa sömu hugsanimar,
iðka sömu leikina og klæðast
sama einkennisbúningnum.
Ég var þessarar skoðunar
þangað til ég fór til Afríku og
tók að mér að stjórna málum
frumstæðs kynþáttar þar. Þar
komst ég að raun um að múg-
sálin á miklu ríkari ítök í frum-
stæðum mönnum en í menntuð-
um Evrópumönnum.
Menntun, kynni af öðrum
þjóðum, flytur með sér nýjar
hugmyndir. Hún rýfur fábreytní
í hugsun og siðum, örvar til
fjölbreytni. Gamlir ættarhöfð-
ingjar í Afríku höfðu andúð á
járnbrautum og vegum; þeir
sögðu, að með þeim kæmu ó-
kunnugir menn, sem spilltu æsk-
unni með nýjum hugmyndum
og gerðu hana uppreisnar-
gjarna.
Það var rétt hjá þeim. Það
er miklu auðveldara að stjórna
frumstæðum kynflokki en nú-
tíma lýðræðisríki, þar sem allir
þegnarnir eru reiðubúnir að
gagnrýna stjórnina, þar sem
hver og einn hefur sínar hug-
myndir um stjórnmál og trú-
mál. Því meiri menntun sem
maðurinn fær, því líklegra er
að hann verði sjálfstæðari í
skoðunum og fastari fyrir. Ég
get fullvissað ykkur um, að það
er miklu auðveldara að stjóma
ráði afríkjuhöfðingja en nefnd
prófessora.
Menningarríki nútímans hef-
ur fjarlægzt múgsálina með
aukinni menntun. En, mun nú
einhver segja, þessi menntim
hefur leyst upp hina frumstæðu
múgsál til þess eins að setja
í stað hennar fleiri og smærri