Úrval - 01.04.1955, Page 7

Úrval - 01.04.1955, Page 7
MILDIR STJÓRNLEYSINGJAR 5 okkur í eitt skipti fyrir öll við styrjaldaróttann. Vissulega væri slík stjórn æskilegri en heims- hrun. En hægt er að gera sér of bjartar vonir um hana. Þann- ig gat hinn skarpskyggni hugs- uður, Bertrand Russel, skrifað nýlega: Þá mun mannkynið loksins losna við óttan um vísindalega tortímingu. Mannkynið mun fyllast nýrri von og nýrri gleði. Þá mun hefjast nýtt skeið hamingju og velsældar, sem ekkert hefur jafnazt á við, hvorki fyrr né síðar . . . Falleg orð, og við, mildir stjórnleysingjar, vildum fegnir mega trúa þeim. En okkur finnst þvílík bjartsýni reist á harla völtum grunni. Bertrand Russel hafði áður lýst því yfir, að alheimsstjórn hans ætli að- eins að skipta sér af því sem nauðsynlegt sé til verndunar friðinum, en hún ætli ekki að láta sig varða innanríkismál þjóðanna. En þessi stjórn er draumórar, tilorðin í víðum og hlýjum huga heimspekings, en ekki fædd í þrúgandi lofti valds- ins, ekki hið æðsta vald, sem boðið getur öllum öðrum vald- höfum byrginn, ekki takmark beirra, sem tærðir eru af valda- fíkn. Auðvitað gæti slík alheims- stjórn rekið styrjaldaróttann á flótta, en friðurinn, sem hún geymdi, kynni brátt að verða friður dauðans. Hún þyrfti að vera mjög voldug til að geta fengið einhverju framgengt. Bráðlega myndi hún skipta sér af öllu og öllum. Hún gæti hæg- lega orðið mesta kúgunar harð- stjórn, sem sögur fara af. And- staða við hana yrði talin til glæpsamlegustu landráða. Til þess að komast hjá því yrði talið óhjákvæmilegt að hafa hemil á hugsunum manna, — og síðasti vottur tjáningarfrels- is yrði afnuminn. Hver og ein tilraun heimsborgarans til að lifa eftir eigin geðþótta yrði á- litin hættuleg uppreisn. Verstu svikin væru að vera sjálfstæð- ur einstaklingur. Og þegar stjórnendur og skriffinnar litu niður úr hályftum kastala heimsveldis síns, myndu þeir skynja mannkynið sem einn þokukenndan grúandi múg, sem stjórna þyrfti með styrkri hendi og af miskunnarleysi, ef svo byði við að horfa, — afmá hverja sjálfstæða hugsun, úti- loka hverja eigin dáð. Þannig gætu hinir óhugnanlegu spá- dómar vísindaskáldsagnanna rætzt. Hin mannlega maura- þúfa væri orðin veruleiki. Þess gerist engin þörf að herða á sprettinum, ef við á annað borð förum villur vegar. Við höfum leyft vélaverki valds- ins að fullkomnast og styrkjast á kostnað okkar. Við höfum alið það á eignum okkar og tíma, réttindum okkar og frelsi, okk- ar eigin blóði. Fólk er ekki til þess að þjóna valdinu. Og vilji valdið ekki þjóna fólkinu, verð- um við að veikja og eyðileggja
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.