Úrval - 01.04.1955, Side 8

Úrval - 01.04.1955, Side 8
6 ÚRVAL tæki þess, sé það nauðsynlegt. Og við höfum stuttan tíma til stefnu, ef við viljum tryggja okkur að valdið þjóni fólkinu. n. Vélgengi og manngildi. Þegar ég segi, að við höfum stuttan tíma til stefnu, er mér ekki efst í huga, að önnur og ef til vill ennþá hryllilegri styrjöld sé yfirvofandi. Ég geri meira að segja ráð fyrir, að unnt verði að komast hjá styrjöld. Heim- ur okkar ætti að geta haldið friði, enda þótt þar ríki tvö vá- leg stjórnarkerfi, grá fyrir járn- um. En hvað bíður fólksins, hins raunverulega fólks — ekki starfshópa eða talna í hag- skýrslum — heldur holdi gæddra einstaklinga ? Það er fólkið, sem öðlast lífsreynslu. Og æðsta gildi þjóðfélagsins, þar sem fólkið lifir, er komið und- ir gildi þessarar reynslu. Þessu hættir okkur alltaf til að gleyma, og mikið er gert að því að hjálpa okkur til þess. En við verðum sífellt að spyrja sem svo: Hvað verður um mann- gildið? Hvers virði er reynsla okkar? Standist þjóðfélagið ekki þá prófraun, er allt trygginga- og öryggisskipulag þess, öll launahækkun og stytting vinnu- tíma, allar dásemdir vísinda og uppfinninga, öll lífsþægindi og allt þjóðræknishjal og hátíð- arhöld fyrir gíg unnin. Við vit- um, að við getum búizt við miklu lengra lífi en forfeður okkar. Samt verðum við að spyrja: Hverskonar lífi? Leyfið mér nú að gera grein fyrir því, hversvegna ég held, að stuttur tími sé til stefnu. Fyrr á öldum voru í heiminum allmörg þjóðfélög, sem þróuðust hægt. Hvert þeirra bjó við sína sérstöku lifnaðarhætti. Frá þeim kom margbreytilegur sjóð- ur lista og vísdóms, sem gengið hefur að erfðum til lista- og bókasafna. Nú virðist aftur á móti sem aðeins ein tegund lifnaðarhátta sé reynd og sem aðeins sé eitt þjóðfélag og all- ur heimurinn haldi í sömu átt. Sumir munu neita þessu. Þeir munu benda okkur á Banda- ríkin og Rússland, sem etja kappi hvort við annað grimm- leit og geigvænleg. En það virðist vera ein kaldhæðni nú- tímans, að þessum yglbrýndu f jendum svipar mjög saman, og að þeir sigla hraðbyri í sömu átt, dragandi í kjölfari sínu flest hin smærri og eldri þjóðfélög. Auk þess er því líkast sem þessi einstefnu skriðurþjóðfélagsokk- ar verði æ hraðari. Hvert sem við erum að fara, verður förin skjótari með degi hverjum. Á meðan á förinni stendur, gerast ýmsir atburðir, sem brátt verð- ur um seinan að hefjast handa gegn, ef okkur skyldi ekki falla þeir í geð. Það verður um sein- an, því að við munum ekki hirða um að hindra framgang þeirra. Fanginn gerir ef til vill ítrek- aðar flóttatilraunir, meðan hann
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.