Úrval - 01.04.1955, Síða 21

Úrval - 01.04.1955, Síða 21
UMHVERFIS JÖRÐINA MEÐ JULES VERNE 19 gera landafræðinni þau skil, sem Dumas hafði gert sögunni í verkum sínum. Faðir hans var orðinn óþolin- móður vegna þess hve lítið hann sinnti náminu, og nú kippti hann alveg að sér hendinni. Verne fékk lítilmótlegt starf í leikhúsi og næstu árin var hagur hans þröngur. „Ég ét nautasteik, sem fáum dögum áður dró vagn eftir götum Parísar," skrifaði hann móður sinni. „Sokkarnir mínir,“ sagði hann við einn vin sinn, „eru eins og kóngulóarvefur, sem flóðhestur hefur sofið í.“ Jules var glæsimenni og kvennagull, og fór ekki hjá því að hann yrði ástfanginn. Eitt sinn, er hann var staddur í veizlu ásamt stúlkunni, heyrði hann hana segja við vinstúlku sína að „hvalskíðin" (í lífstykk- inu) meiddu sig. Gall þá Jules við: „Ó, hvað ég vildi mega kafa og leika mér við hvalina!" Faðir stúlkunnar heyrði þetta, varð fokvondur og bannaði dóttur sinni að mæla orð við þennan mann framar. En Jules varð aftur ástfanginn, og í þetta sinn kvæntist hann. Með aðstoð föður síns gerðist hann nú víxlari. Efnahagur hans batnaði, en hann hélt áfram að búa í þakherbergi og skrifa. Klukkan sex á morgnana var hann setztur við skrifborð sitt og samdi vísindagreinar fyrir barnablað. Klukkan tíu klæddist hann virðulegum víxlarafötum og hélt til skrifstofu sinnar í kauphöllinni. Fyrsta bókin, sem hann skrif- aði var Fimm vikur í loftbélg. Fimmtán útgefendur sendu hon- um aftur handritið. I reiði sinni fleygði Jules því í eldinn. Kon- an hans bjargaði því úr logun- um og fékk hann til að lofa því að senda það einu sinni enn. Sextándi útgefandinn tók það. Fimm vikur í loftbelg varð metsölubók og var þýdd á allar helztu tungur heims. Árið 1862 var Jules Verne, þá 34 ára gam- all, orðinn heimsfrægur. Hann kvaddi kauphöllina, og skrifaði undir samning, sem skuldbatt hann til að skrifa tvær skáld- sögur á ári. I næstu bók sinni, Ferð inn að miðju jarðar, lætur hann söguhetjur sínar fara niður í jörðina gegnum eldgíg á íslandi (Snæfellsjökul). Þær lenda í ó- trúlegustu ævintýrum og koma loks upp aftur fljótandi á hraun- flóði, sem vall úr eldf jalli á ítal- íu. I þessari bók mátti finna allt það, sem vísindin vissu eða gátu getið sér til um að gerðist í iðrum jarðar, kryddað hvers- kyns ævintýrum. Almenningur gleypti við þessu. Ferdinand de Lesseps, sem hafði nýlokið við að láta gera Súezskurðinn, var svo hrifinn af bókum Vernes, að hann beitti áhrifum sínum til þess að hann fengi pening Heiðursfylkingarinnar. Þegar þau hjónin eignuðust son, fluttu þau frá París til Ami- 3*
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.