Úrval - 01.04.1955, Page 48
46
TJRVAL,
maí rannsökuðum við Goughey
í góðu veðri og sendum merki.
Sáum hvergi neitt til Köben-
havn né skipshafnar þess.“
Nánari fréttir bárust frá skip-
stjóranum á Halesius frá Buen-
os Aires. Enskur trúboði á
Tristan da Cunha, Philip C.
Lindsay, hafði fyrstur séð segl-
skipið. Eftir frásögn hans taldi
skipstjórinn, að brimið við rif-
ið, sem nefnt er í skeytinu,
hafi verið svo mikið, að útilokað
sé, að skip, sem hefði komið
eins nærri rifinu og trúboðinn
sagði, hefði komizt undan. En
þeir sem kunnugir eru á Tristan
da Cunha, segja, að íbúunum sé,
vegna einangrunar, gjarnt á að
ýkja og iáta ímyndunaraflið
hlaupa með sig í gönur.
Það kom miklu róti á hugi
manna heima í Danmörku þegar
flöskuskeyti fannst í Malmö í
lok apríl. Skeytið var dagsett
25. febrúar og stóð í því, að
skipið væri strandað á lítilli
eyju í Norfolk eyjaklasanum
og að margir nemendanna væru
veikir af malaríu. Undir skeyt-
inu stóð: Einn af nemendunum.
Flestir voru að sjálfsögðu van-
trúaðir á, að flöskuskeyti hefði
á tveim mánuðum getað rekið
frá eyju austur af Ástralíu allt
til Eyrarsunds aðeins fáa km
frá heimahöfn skipsins. Senni-
lega var hér um ótrúlega grátt
gaman að ræða. En í skeytinu
var þó eitt athyglisvert — það
var minnst á malaríu.
Af bréfum frá nemendunum
er sem sé ljóst, að mosldtóflug-
ur hafa mjög angrað þá í Buen-
os Aires. Sú skoðun hefur því
verið sett fram, að skömmu
eftir brottförina hafi brotist út
svo svæsinn malaríufaraldur um
borð, að illmögulegt hafi verið
að stjórna skipinu, og hefur þá
ekki mátt mikið út af bera. I
því sambandi má minna á, að
fyrir röskum 20 árum kom
sænskt skip til Hull frá Vestur-
afríku með svo marga af skips-
höfninni veika af malaríu, að
skipstjórinn og fyrsti stýrimað-
urinn urðu að skiptast á um að
standa við stýrið til að koma því
í höfn!
Til þessa höfðu aðeins brezk
skip leitað að Köbenhavn, en nú
voru uppi háværar kröfur um,
að útgerðarfélagið léti skip sín
einnig leita, og 3. júlí lagði mót-
orskip Ö. K., Mexico, frá Rio de
Janeiro í leitarleiðangur. Hinn
24. júlí kom fyrsta tilkynningin
frá Mexico. Skipstjórinn hafði
þá farið í land á Tristan da
Cunha og haft tal af trúboðan-
um og öðrum eyjarskeggjum.
Gáfu þeir nákvæma lýsingu á
skipinu, sem þeir höfðu séð, og
kom í Ijós, að trúboðinn hafði
fylgzt með skipinu í kíki sínum
í þrjá tíma, án þess að sjá
nokkur merki lífs um borð.
En meðan mest var um það
rætt hvort það hefði verið
Köbenhavn, sem fór framhjá
Tristan da Cunha, kom frétt frá
Marienhamn um það, að fjór-
sigld, finnsk skonnorta, Pon-