Úrval - 01.04.1955, Page 71

Úrval - 01.04.1955, Page 71
TRÚIÐ EKKI YKKAR EIGIN AUGUM! 69 leikhúsinu „Teatro Olimpico," sem arkítektinn Palladio reisti á endurreisnartímabilinu. Að fyrirmynd hinna gömlu róm- versku leikhúsa byggði hann á- horfendasvæðið í hálfhring, síð- an tekur við framsvið, en að baki þess eru fernar bogadyr. Horfir maður í gegnum þessar dyr, sér maður eftir löngum göt- um með húsaröðum á báðar hliðar. I rauninni eru þessar götur þó aðeins fáeinir metrar. Á sama hátt og í nútímaleik- húsi eru leiktjöld gerð eftir rúmvíddarreglum, þannig að stuttar fjarlægðir sýnast mjög langar. Það er aðeins einn galli á þessum leiktjöldum: leikararnir minnka ekki í samræmi við leik- tjöldin þegar þeir ganga inn á baksviðið! 0-0-0 VITNI AÐ FÆÐINGU FlLS. Á friðunarsvæði villtra dýra á Ceylon varð einn gæzlmað- urinn, W. L. A. Andiris, sjónarvottur að atburði, sem mannleg augu munu sárasjaldan hafa litið. Hann sá fíl ala kálf og var vitni að öllum aðdraganda og viðbúnaði atburðarins. Hann segir svo frá þessu i skýrslu til Villidýradeildar landbúnaðarráðuneytis- ins á Ceylon: Það var augljóst, að móðirin og hinar átta ,,ljósmæður“ hennar höfðu vandlega valið fæðingarstaðinn, sem var í rjóðri i nánd við lítið lón, en þéttvaxinn frumskógurinn allt í kring. Móðirin lá á hliðinm í rjóðrinu. Hjúkrunarliðið stóð í kringum hana og gældi blítt við hana með rönunum. Þegar fæðingarstundin nálg- aðist gerðist móðirin óróleg, stóð upp aftur og aftur og færði sig nokkur skref til, en lagðist alltaf aftur. Sjö úr hjúkrunarliðinu drógu sig nú i hlé inn í frumskóginn, en eftir var aðeins ein „ljósmóðir.“ Öðru hvoru komu tveir og tveir úr hjúkrunarliðinu til þess að þukla móðurina með rönunum. Fæðingin sjálf virtist elcki valda móðurinni neinum sársauka eða erfiði og hún gaf ekkert hljóð frá sér. Þegar fæðingin var afstaðin, stóð hún upp og gekk um tíu skref í burtu. Þar baulaði hún og kom þá allt hjúkrunarliðið baulandi og þuklaði hana með rönunum. Svo lagðist móðirin tii hvíldar, en allt hjúkrunarliðið gekk til kálfsins. Einn úr liðinu reisti hann varlega á fætur. Því næst gengu allir hinir í röð framhjá honum og blésu á hann sandi með rönunum til að þurrka úfinn feldinn. Þessu var haldið áfram í hálftíma. Þá var kálfurinn orðinn stöðugur á fótunum. Nú stóð móðirin upp, baulaði hátt og gekk hratt til kálfsins. Hún lyfti honum upp með rananum og fór með hann burtu úr hópnum. Svo lagðist hún varlega á hnén og lét kálfinn á spena. Þegar þessari fyrstu máltíð kálfsins var lokið, baulaði móðirin aftur, tók hann upp með rananum, lyfti honum hátt yfir höfuð sér, hvarf inn í skóginn og hjúkrunarliðið á eftir henni. — AP.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.