Úrval - 01.04.1955, Qupperneq 75

Úrval - 01.04.1955, Qupperneq 75
DRAUMURINN UM LANGT LÍF 73 þar sem súrmjólkurmaturinn „yogurt“ er þjóðarréttur. En upplýsingar Metchnikoffs voru ekki byggðar á hagskýrslum, heldur aðeins á almannarómi og eigin athugun. Nýlegar athug- anir munu þó hafa staðfest, að mjög mikið getur verið af rotn- unarbakteríum í ristli gamals fólks, einkum ef litlar sýrur eru í maga, og að tilteknir mjólkur- sýrugerlar geta þrifist í þörm- unum og unnið gegn rotnuninni. En hann gat ekki með vissu bent á neitt öruggt orsakasam- band milli rotnunar í þörmum og æðakölkunar. Það eru einkum vakarnir (hormónin) og þá fyrst og fremst kynvakarnir, sem elli- rannsóknirnar hafa beinzt að. Hinn kunni franski lífeðlisfræð- ingur C. Brow-Sequard (1817 -—1894) mælti með því, að dælt yrði sæðisfrumum beint í æð, af því að hann taldi, að elli- hrörnunin væri bein afleiðing minnkandi starfsemi kynkirtl- anna. Hann gerði tilraunir á sjálfum sér með seyði úr eist- um, og fannst honum hann yngj- ast við það. Austurríski vísinda- maðurinn E. Steinach og Knud Sand í Kaupmannahöfn gerðu tilraunir á dýrum; þeir bundu fyrir sæðisgöngin, sem liggja frá eistunum inn í þvagrásina gegnum blöðruhálskirtilinn. Eftir þessa aðgerð urðu miklar breytingar á eistunum: sá hluti þeirra, sem myndar sæðið eydd- ist, en hinn, sem gefur frá sér kynvaka stækkaði. Á gamla og ellihruma hunda hefur þessi að- gerð haft furðuleg áhrif. Þeir hafa fengið greinileg æskuein- kenni að nýju. En samskonar aðgerðir, sem gerðar hafa verið á gömlum mönnum, hafa valdið vonbrigðum. I sumum tilfellum réðu þær að vísu bót á sumum þeirra einkenna, sem gjarnan fylgja hinu svonefnda frjó- brigðatímibili karlmannsins, en á aðra höfðu þær engin áhrif eða þá aðeins skammæ. Það má nú teljast öruggt, að aðgerð Steinachs sé þess ekki umkomin að stöðva ellihrörnun og lengja mannsævina. Nokkru eftir að Steinach hóf tilraunir sínar, gerði rússneskur læknir, Voro- noff, sem heima átti í París, til- raun til að græða apaeistu í karlmenn. Áhrif þessarar að- gerðar voru einnig mjög vafa- söm og er fyrir löngu hætt við þær. Æskulyf. En áhrif vakanna á ellihrörn- unina eru engan veginn að fullu upplýst enn. Það er staðreynd, að í sambandi við sjúkdóma í innrennsliskirtlum, einkum heiladingulsins, má greina hjá börnum einkenni, sem líkjast ellimörkum. Ekki er heldur neinn vafi á því, að með aldrinum dregur úr starfsemi kirtlanna. Það er þannig ekki aðeins starf- semi kynkirtlanna, sem minnk- ar, heldur einnig skjaldkirtilsins heiladingulsins, nýrnahettanna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.