Úrval - 01.04.1955, Síða 88

Úrval - 01.04.1955, Síða 88
86 ÚRVAL ætlum að velja reglulega góða gjöf. Mamma vill að þú hjálpir okkur til þess.“ „Þau kunna lagið á því!“ muldraði Bisbee gremjulega í barm sér. „Þau treysta engum manni í bænum til að grafa á myndamótið og svo láta þau mann borga dýrindisgjöf handa þeim. Fjandinn hafi það ef ég gef þeim nokkurn skapaðan hlut!“ Honum leið strax betur, enda þótt hann vissi, að þessi hótun yrði aldrei annað en orð- in tóm. Þvert á móti, hann skyldi velja reglulega vandaða gjöf úr verzlun sinni, gjöf, sem jafnaðist á við mestu gersem- ar Murchisons. Hann skyldi kenna þeim að skammast sín! Þeir áttu ekki betra skilið, þess- ir bölvaðir uppskafningar. Eftir hádegisverðinn færði Bisbee sig í aftasta vagninn og ætlaði að fá sér sæti á útsýnis- pallinum. Þar var margt fólk fyrir, en honum tókst að ná sér í stól milli aldraðs manns með gráan flókahatt og svart- klæddrar konu. Það var eitt- hvað í fari konunnar, sem gerði hana frábrugðna öllum öðrum konum, sem hann hafði séð. Bisbee gat ekki gert sér grein fyrir hvað það var. Ef hann hefði átt að lýsa henni, myndi hann hafa sagt, að hún minnti sig á yngri og fallegri útgáfu af frú Emory Rathbone. Undir venjulegum kringum- stæðum hefði hann orðið dauð- feiminn í návist slíkrar hefð- arkonu, jafnvel þótt hann hefði ekki tekið eftir perluhálsfest- inni, sem hún bar. Ef perlurnar voru ósviknar, og það litu þær út fyrir að vera, hlaut festin að hafa kostað ógrynni fjár. Og sú staðreynd, að hún lét bera lítið á festinni, styrkti hann í þeirri skoðun sinni. Þegar hann var seztur í stól- inn, hafði tekið upp dagblöðin og sett upp gráa silkihanzkana, lét hann augun reika um fjallahringinn í fjarska, unz augnaráð hans staðnæmdist við konuna, sem sat við hlið hans. Perlurnar voru áreiðanlega ó- sviknar, þær voru stórar og hvítar, gljáinn og lögunin var óaðfinnanlegt. Þegar hann hafði lokið athug- un sinni, tók hann upp hlífð- ar-gleraugun, sem hann not- aði ávallt í ferðalögum, og setti þau á sig. Aldraði maðurinn í næsta stól kveikti sér í vindli, og þegar Bisbee fann tóbaks- ilminn, langaði hann sjálfan til að reykja. Hann var í þann veg- inn að kveikja í uppáhalds- vindlinum sínum, þegar hann veitti því athygli, að reykinn frá vindli sessunautar hans lagði út í hornið þar sem kon- an sat. Bisbee hikaði andartak, svo stakk hann vindlinum aftur í vasann. En konan, sem virtist ekki hafa tekið eftir neinu sem gerðist í kringum hana fyrr en nú, sneri sér að honum og sagði:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.