Úrval - 01.04.1955, Side 100

Úrval - 01.04.1955, Side 100
98 TJRVAL látið reiði sína í ljós, vék hún sér að honum: „Hvers konar prinsessa sagð- ist hún vera?“ „Hún sagði ekkert um það. Sendiherrann tók á móti henni þegar lestin kom til Chicago. Það var hann, sem sagði mér hver hún var. Og ef ykkur lang- ar til að sjá hvernig hún lít- ur út,“ sagði hann og tók myndina upp úr veskinu, „þá er hérna mynd, sem hún gaf mér. Hvað segið þið nú?“ Pálína skoðaði myndina og hristi höfuðið. „Þetta er ekki prinsessa. Hún er of lagleg. Prinsessur eru alltaf herfilega ljótar.“ „Má ég sjá,“ sagði frú Bis- bee, tók myndina af dóttur- inni og athugaði hana. „Ég skil ekki hvernig þú getur sagt að hún sé lagleg. Hún er of munnstór, og svo hlær hún eins og bjáni.“ „Hvað sagðist hún heita?“ spurði Pálína. „Nafn hennar tignar,“ til- kynnti Bisbee, þandi út brjóst- ið og rak hökuna niður í harða flibbann, „er Gabríella Lesca- boura. Hún skrifaði nafnið sitt á myndina." „Ér það nú nafn!“ sagði kona hans og hló. „Bíddu ofurlítið, mamma." Pálína hafði kropið á hnén og var farin að fletta blöðunum í hillunni. „Það kæmi mér ekki á óvart þó að pabbi hefði rétt fyrir sér,“ sagði hún. „Ég held að þetta sé sú sama og ég var að lesa um.“ „Efalaust,“ sagði Bisbee kuldalega. Blaðið, sem Pálína hafði tek- ið úr hillunni, var þunnt og bar heitið Chit-Chat. Hún fletti því í snatri. „Hérna er það!“ Pálína leit spurnaraugum á föður sinn. „Hvað veiztu um hana, pabbi?“ „Lestu bara,“ sagði Bisbee kæruleysislega. „Hérna stendur: „Hin fagra prinsessa Lescaboura, sem hef- ur dvalið í Santa Barbara í vet- ur, er í þann veginn að hverfa aftur heim til Evrópu, og þeir sem bezt þekkja til . . .“ „Hún fer frá New York eft- ir viku,“ skaut Bisbee inn í. „Og þeir sem bezt þekkja til, eru nú að velta því fyrir sér, hvort prinsessan og maður hennar muni hittast í höll þeirra hjá Cote d’Azur, eða hvort Lido hafi orðið fyrir val- inu. Það er alkunna, að prins- inn er sérstaklega hrifinn af þessum glæsilega baðstað.“ „Alveg rétt, alveg rétt,“ sagði Bisbee og gekk um gólf í ákafa. Pálína hélt áfram: „Þeir sem fylgjast með lífinu á glæsileg- ustu baðstöðum Evrópu, telja prinsinn og prinsessuna mjög frjálslynd. Vegna hinna miklu auðæfa, geta þau talið Créme de la créme — blómann af tignar- fólki Evrópu — meðal nánustu vina sinna, en þau hafa annars mörg áhugamál, og hneigð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.