Úrval - 01.03.1968, Blaðsíða 55
FLUGFERÐ í KRINGUM HNÖTTINN
53
fyrir hnattflug þetta, er Boeing
707, sem getur flogið í 9000 flug-
tíma eða um 4V2 milljón mílna
vegalengd, án þess að það sé nauð-
synlegt að yfirfara hreyflana. Hún
er skráð sem „Clipper One“ og er
nú lögð af stað í vesturátt frá San
Francisco. Hún flýgur þessa 19.894
mílna vegalengd til New York á
57 klukkustundum og 51 mínútu.
Svo snýr hún við í New York og
flýgur í austurátt sömu leið til baka
til San Francisco og er þá skráð
sem „Clipper Two“. Og meðvind-
urinn gerir það að verkum, að þá
flýgur hún sömu vegalengd á 7
klukkustunda og fimm mínútna
skemmri tíma. (Farþegar, sem
vilja ljúka fullkomnu hnattflugi,
geta svo haldið áfram með annarri
flugvél þvert yfir Bandaríkin vest-
ur til San Francisco á vesturströnd-
inni......á sama miða og án auka-
gjalds).
Það tekur „Clipper One“ tvo sól-
arhringa að komast frá San Fran-
cisco til New York, en á þeim tíma
leggja tvær aðrar flugvélar af stað
á eftir henni frá San Francisco og
aðrar tvær í þveröfuga átt frá New
York. Þetta er líklega það ótrú-
legasta við þetta furðulega fyrir-
brigði. Þessar furðuferðir eru farn-
ar á hverjum degi. (Þrjú önnur
flugfélög halda einnig uppi hnatt-
flugi: BOAC þrisvar í viku frá
Lundúnum, Quantas þrisvar í viku
frá Sydney og Japan Air Lines dag-
lega frá Tokyo). Undanfarna 6
mánuði var helmingi allra flugferða
„Clipper One“ lokið á næstum því
nákvæmlega áætlaðri tímalengd,
þ.e.a.s. það skeikaði ekki meira en
60 sekúndum. Hvað hinn helming
flugferðanna snertir, var ujn örlitla
seinkun að ræða, en þó aldrei meiri
seinkun en 9 mínútur. Hvernig í
ósköpunum fara mennirnir að
þessu? Míg langaði að vita það, og
því lagði ég upp í slíka flugferð frá
San Francisco til New York með
„Clipper One“ núna nýlega.
GIMSTEINN í HAFINU
Klukkan 9 f.h. leggur flugvélin
af stað. Þetta ferlíki er 71,5 tonn af
málmi, og ber það 54 tonn af elds-
neyti, 13 tonn af vörum og 9,5 tonn
af mannverum, en þannig er hinum
115 farþegum lýst í flutningaskjöl-
unum. Þegar flugvélin hefur náð
160 mílna hraða, dregur hann hjólið
inn og flugvélin geysist upp í loft-
ið. Við höfum nú yfirgefið hið
ameríska meginland, sem er þakið
snjó og ís. Flugvélin flýgur 8 mílur
á mínútu hverri og brennir um leið
185 lítrum af af bensíni. Og 10 mín-
útum eftir flugtak fljúgum við yf-
ir dimmbláu hafi, sem laugað er
geislum frá dimmbláum himni. Suð-
ur-Kyrrahafið sendir okkur hlýja
kossa úr 2000 mílna fjarlægð. 84
farþeganna ætla aðeins til Hawaii
og munu því halda áfram að njóta
þessa dásamlega veðurs. 13 aðrir
óska þess innilega, að þeir gætu
líka orðið eftir á Hawaii. Þeir ætla
til Tokyo, en þar snjóar nú einmitt
um þessar mundir. Þrír aðrir ætla til
Hong Kong og 14 áfram til Bang-
kok. Ég er eini farþeginn, sem ætlar
alla leið til New York.
Þegar ég kem loksins til New
York, mun flugvélin hafa flutt 1500
farþega í þessari ferð, ásamt 6