Úrval - 01.04.1968, Page 115
SAMBANDSRÍKIÐ BRASILÍA
113
inu. Þar eru enn ókönnuð svæði
með Indíánum á steinaldarstigi.
Verðbólga er mikið fjárhagslegt
vandamál og einnig þar sums stað-
ar e.k. lénsfyrirkomulag síðan á
nýlendutímanum. Allt þarfnast
mikilla endurbóta og breytinga og
það sem fyrst.
Landamærin eru u.þ.b. 22500 km.
löng og liggja að öllum Suður-
Ameríkuríkjum nema Chile og
Ecuador. Brazilíumenn eru vanir að
segja, að öll þeirra fjöll séu á röng-
um stað. Mikið og bratt fjallendi
á austurströndinni hefur hindrað
fólksflutninga og ræktun frá byrj-
un. Rúmlega 70% þjóðarinnar býr
á mjórri rönd við Atlantshafið,
svo þétt að líkja má við flugur á
hrossskrokk og eitthvað af þessu
fólki verður að flytja lengra inn í
landið. Rannsóknir og mælingar
hafa verið gerðar úr lofti á hin-
um ósnortnu innsvæðum, en nýja
höfuðborgin, Brazilía, er á vestur-
jaðri menningar og ræktunar, á
hásléttunni 1200 km. norðvestur af
Rio de Janeiro. Bygging borgarinn-
ar kostaði meira en 200 milljón doll-
ara og svipur hennar minnir á vís-
indalega skáldsögu. Hún var full-
byggð árið 1960 og leysti þá Rio de
Janeiro af hólmi sem höfuðborg,
en árið 1955 voru aðeins þrír íbú-
ar á borgarsvæðinu. Nú er þar
350000 manns. AUt efnið í bygging-
arnar var flutt flugleiðis, jafnvel
sement og stál. Svæði borgarinnar
líktist ílugvél að lögun, og líklega
er dómkirkjan þar mesta þrætu-
eplið, en hún er byggð neðanjarð-
ar og sýnir grafhýsi (eatacombs)
á táknrænan hátt. Allt, sem sést
ofanjarðar, er geysistór þyrni-
kóróna úr málmi. Ákafar deilur
hafa orðið um þessa borg og hún
er stundum nefnd „martröð í Dali-
stíl“, eða „höfuðborg vélmennis-
ins“. Margir íbúanna þjást af veild,
sem er ranglega nefnd Brasilíu-
veiki (Brasilíatis), en orsök hennar
er tilbreytingarleysi bygginganna
og einhæfni landslagsins. Hinar
tröllauknu opinberu skrifstofu-
byggingar líkjast mjög hver ann-
arri. Samt væri ókleift að snúa rás
tímans frá hinni nýju höfuðborg
eftir þetta, enda er hún tákn um
mikilleika og framtíðarmöguleika
þjóðarinnar í augum margra Brazi-
líumanna.
Brazilía er áttunda fólksflesta
ríki heims með 30 milljónir manna,
sem er helmingur af íbúum Suð-
ur-Ameríku. Þjóðin er einnig ung,
helmingur fólksins er undir 18 ára
aldri og árleg fjölgun 3,4%. Þjóð-
fræðingar telja, að um næstu alda-
mót verði þar 200 milljónir manna.
Líkja má Brazilíu við bræðslu-
þró, sem bræðslan hefur þegar far-
ið fram í. Eins og áður er sagt,
hefur kynþáttavandamálið aldrei
orðið eins erfitt þar og víða ann-
ars staðar. Hvítir landnemar og
verzlunarmenn, sem flykktust
þangað á 16. öld voru flestir portú-
galskir. Þrjár og hálf milljón svert-
ingja voru fluttir inn frá Afríku
fyrir afnám þrælahalds árið 1888.
Þeir fluttu með sér trumbur sínar
og dansa, ásamt venjum í mat og
drykk og setja mjög svip sinn á
Brazilíu. Þjóðin er orðin mjög
blönduð og samkvæmt áreiðan-
legum skýrslum eru 60% af hvít-