Úrval - 01.09.1970, Blaðsíða 37
HlN NÝJA MYND ALHElMSINS
35
„svört göt“ hafa valdið. Þegar hið
ofsalega þyngdarafl, sem þjappar
risavöxnu stjörnukerfi saman,
þangað til það verður að engu,
finnur ekki lengur neina mótstöðu,
því að það er ekki lengur neitt fyrir
hendi til þess að veita slíka mót-
stöðu, þá fer það að toga í allar ná-
lægar fastastjörnur og togar þær
inn í sig. Þannig verður „svarta gat-
ið“ j'afnvel enn stærra og öflugra.
Þegar „svarta gatið“ verður nægi-
lega stórt til þess að geta byrjað að
gleypa í sig heila sólkerfaþyrpingu
eða hluta hennar, þá geisla þær
milljónir stjarna, sem verða nú í
hættu, frá sér allri sinni orku til
þess að hindra, að þær falli niður í
„gatið“. Ofsahitinn, sem myndast,
er heil sólkerfaþyrping tekur á allri
sinni orku til þess að komast hjá
því að hrapa niður í „svart gat“,
gæti verið uppspretta hinnar of-
boðslega sterku skellibirtu „quasar-
stjarnanna“. Ég gat ekki annað en
vorkennd þessum ofsahræddu,
dauðadæmdu stjörnum, er dr. Gold
skýrði mér frá þessu. Meðaumkun-
in, sem hann greindi í andlitssvip
mínum, var líklega ekki síður at-
hyglisverð en ýmsir atburðir, sem
hann hafði orðið vitni að í alheim-
inum, því að það, sem gerir sögu
stjörnufræðinganna svo óskaplega
furðulega, er sú staðreynd, að leik-
urinn sjálfur á þessu risaleiksviði,
geiminum, „skapaði" sína eigin
áhorfendur, svo að þeir gráta eða
gleðjast yfir leik þessum. Leikurinn
sjálfur skapaði... okkur.
Þetta er sú nýja mynd alheims-
ins, sem er nú að taka á sig lögun í
stjörnuathugunarstöðvum hinna
fimm meginlanda jarðarinnar, sú
mynd, sem verða mun fylgifiskur
mannkynsins þegar á næstu árum.
Hún er gerólík hinni flatneskju-
legu, vélrænu og takmörkuðu al-
heimsmynd 19. aldarinnar. Þótt við
höfum enn ekki fengið neitt end-
anlegt svar við spurningum okkar
um alheiminn, gerum við okkur nú
betri grein fyrir því en nokkru sinni
fyrr, að við erum hluti þessarar
risavöxnu leiksýningar. Við vitum
nú, að mannkynið átti upphaf sitt í
stjörnuryki, að það var mótað í
brennandi sólum og fætt í gerbylt-
ingu ragnaraka. Sú vitneskja, að
efnið í okkur sjálf varð til í svo
stórfenglegum átökum, veitir okkur,
mönnunum, sem búa á plánetunni
Jörð nýjan .dkilning á tengslum.
okkar og skyldleika við sjálfan guð.
Rússneskt dagblað, æskulýðsblaðið „Komsomolskaya Pravda", henti
nýlega gaman að Mao með því að prenta 20 svör úr dagblaði í Peking
við spurningum til íþróttamanna Þess efnis, hvað þeir tækju til bragðs,
er þeir væru taugaóstyrkir, þreyttir eða bara reiðir vegna úrskurðar
dómarans. Svarið var þetta í öllum tilfellum: Sný mér að ritsafni Maos
formanns.
Reuters.