Úrval - 01.09.1970, Qupperneq 72
70
ÚRVAL
æptum, þegar við komum auga á
bát Strandvarnarliðsins. En þeir
fóru framhjá okkur án þess að sjá
okkur. Það var langversta augna-
blikið. En svo komu þeir auga á
okkur.“
NOKKUR ORÐ í EINLÆGNI
TÖLUÐ
í rökkurbyrjun þetta kvöld fór
Kramek út. Hann sagðist ætla í
gönguferð. Eftir að hafa gengið
mílufjórðung, kom hann að ráðhús-
inu. Það var lítil timburbygging,
þar sem þá var einmitt verið að
halda bæjarstjórnarfund. Kramek
gekk inn í fundarherbergið, sem
var alveg fullt, og fékk sér sæti
aftan til. Honum fannst hann vera
þarna eins og eitthvert aðskotadýr.
En hann hafði komið til þess að
flytja stuttan ræðustúf. Og hann
bað um orðið. Þegar honum var
veitt það, gat hann aðeins tjáð hugs
anir sínar og tilfinningar með ósköp
fátæklegum orðum, að því er hon-
um fannst.
„Ég heiti Stanley Kramek, og ég
hef komið með fjölskyldu mína til
eyjarinnar ykkar í sumarleyfi mínu
síðustu árin. Síðdegis í dag lenti
dóttir mín og ungur vinur sonar
okkar í sjávarfallastraumnum og
skoluðust frá landi. Ég hefði glatað
dóttur minni og drengnum, ef Sjálf-
boðaliðsbjörgunarsveitin ykkar og
Strandvarnarliðið hefðu ekki
brugðið svo skjótt við. Það, sem
mig langar til að segja . . . frá
innstu hjartarótum. . . . “ Hann
missti nú vald yfir röddinni, og
andlit hans varð eldrautt af áreynsl-
unni við að halda áfram. Hann
ræskti sig og sagði: „Frá innstu
hjartarótum þakka ég ykkur.“ Síð-
an flýtti hann sér út.
Eyjarskeggjum verður tíðrætt um
Diane Kramek. Robert Widerman í
Strandvarnarliðinu hefur þetta að
segja um afrek hennar: „Þegar bát-'
urinn minn komst að henni, hafði
hún borið drenginn á bakinu í hálfa
aðra klukkustund. En samt var hún
ekki gripin neinni ofsahræðslu. Hún
heilsaði okkur með innilegu brosi.
Ég hef bjargað mörgum í sjónum,
en engum sem henni.“ Conley, yfir-
maður Sj álf boðaliðsbj örgunarsveit-
ar Blockeyjar, hefur þessu við að
bæta: „Hún er kjarkmesta stúlka,
sem ég hef nokkru sinni séð.“
Það mun líða langur tími, þar til
íbúar Blockeyjar gleyma Diane
Kramek. Og það mun einnig líða
langur tími, þangað til Kramek-
fjölskyldan gleymir íbúum Block-
eyjar.
☆
Um daginn rakst ég á vinkonu mína og 16 ára dóttur hennar inni í
matvöruverzlun. Vinkona mín var í ósköp leiðu skapi og virtist ráfa um
án þess að vita, hvað hún var að gera. Þegar hún sá mig, sagði hún:
„Ég er í svo miklu uppnámi, að ég veit ekkert, hvað ég er að gera:
Mary var að koma úr bílprófinu, og 'hún hafði það!"
Frú D. B. Johnson.