Úrval - 01.09.1970, Síða 103
MAÐURINN SEM ÓGNAÐI ELDINGUNNI
101
vera trúan þegn konungs. Hann áleit
ættjörð sína vera óaðskiljanlegan
hluta þess dýrlega heimsveldis, sem
þekkt var undir nafninu Stóra-
Bretland. Hann hafði miklazt af
sigrum Englands. En núna neyddu
ýmsir atburðir Franklin til þess að
horfast í augu við óhjákvæmilega
staðreynd. Eftir tæpa hálfa aðra öld
hafði ný þjóð eða að minnsta kosti
nýtt þjóðarbrot myndazt hinum
megin úthafsins.
James Hewit, sem var stuðnings-
maður Rockinghams, reis nú á fæt-
ur til þess að bera fram nokkrar
spurningar. „Greiða Ameríkumenn
talsverða skatta?“ spurði hann.
„Vissulega, marga og mjög þunga
skatta,“ svaraði Franklin.
„Er fólk ekki almennt fært um að
greiða þessa skatta?“
„Nei. Fólkið í hreppunum við
landamærin á mjög erfitt með að
greiða nokkra skatta vegna eyði-
leggingar, sem þar hefur orðið af
völdum óvinanna, og hinnar miklu
fátæktar, sem þar ríkir nú.“
John Huske, einn af fáum þing-
mönnum sem fæðzt hafði í Ameríku,
tók nú til máls. Hann spurði Frank-
lin um það, hvernig stimpilgjalds-
skatturinn dreifðist. Franklin lýsti
því á ósköp hversdagslegan og ró-
legan hátt, að lögin væru ekki að-
eins óréttlát, heldur mjög óhag-
kvæm. Hann sagði, að það væri eng-
in póstþjónusta í hinum afskekktu
vesturbyggðum, sem væru mjög fá-
rnennar, og þar gæti fólk ekki orðið
sér úti um stimpla á plögg sín, sem
þýddi, að það gat ekki gifzt, ekki
gert erfðaskrár eða keypt eða selt
fasteignir, nema með því að leggja
Deborah Franklin.
á sig langíerð og „eyða kannski
þrem eða fjórum pundum, svo að
Krúnan geti fengið sex pense í
stimpilgjald.“
Skyndilega var gripið fram í og
bornar fram hörkulegar spurningar.
„Vitið þér ekki, að féð, sem fæst
með stimpilgjöldunum, á að nota í
Ameríku sjáifri?“
„Eg veit, að samkvæmt fjárlögun-
um hefur því verið veitt til þess að
auka og efla þjónustu í Ameríku.
En því verður eytt í hinum sigruðu
nýlendum (Kanada og Florida), þar
sem hermennirnir eru, en ekki í ný-
lendunum, sem greiða fyrir þjón-
ustuna.“
Menn Rockinghams spurðu
Franklin nú um íbúatölu brezku ný-
lendnanna í Ameríku óg hversu
mikill innflutningur frá Bret-