Úrval - 01.09.1970, Page 129
127
Sérkennilegasti fuglavinur, sem
uppi hefur verið, er áreiðanlega
geysiauðugur Gaikwar í Baroda í
Indlandi. Hann hélt aðallega upp á
dúfur og eyddi stórfé í að gifta sam-
an dúfnapör með pompi og pragt,
þeirri viðhöfn, sem hvergi er til
nema í Austurlöndum. Arlega lét
hann velja úr þær dúfur, sem til
greina gátu komið að hans dómi til
þess að ganga í heilagt hjónaband
undir hans vernd og náð. Hann átti
að sjálfsögðu stærðar dúfnahús, fullt
af úrvals tegundum. Þegar búið var
að velja brúðhjónin tilvonandi, voru
þau sett upp á fíl, sem hulinn var að
mestu gullinni ábreiðu með ísettum
demöntum. Fíllinn var síðan leidd-
ur til þess staðar, þar sem athöfnin
átti að fara fram. Gaikwarinn fram-
kvæmdi sjálfur vígsluna, og að
henni lokinni hélt hann dýrðlega
veizlu til heiðurs hinum fiðruðu
brúðhjónum. Allir helztu embætt-
ismenn ríkisins og fleira stórmenni
var boðið til veizlunnar. Brúðhjón-
in fengu ævinlega dýrar gjafir. Láta
mun nærri, að Gaikwarinn hafi eytt
í þessa einkennilegu viðhöfn þau
fjórtán ár sem hann ríkti um tveim-
ur milljónum dala, enda gengu 84
dúfur í það heilaga á ríkisstjórnar- '
árum hans.
500 kvæntir menn voru eitt sinn
spurðir að því, hver það væri sem
hefði tögl og hagldir á heimilinu. 305
svöruðu, að það væri konan, sem
hefði síðasta orðið, og 194 svöruðu,
að áhrif tengdamóðurinnar væru
allajafna sterkust. Einn einasti mað-
ur sagðist vera húsbóndi á sínu
heimili. Þessi eini maður vakti at-
hygli spyrjenda, og þeir ræddu mál-
ið nánar við hann. Þá kom í ljós, að
maðurinn hafði verið spurður af
vangá. Hann var búinn að vera
ekkjumaður í sex ár.
—o—
Það er stundum erfitt fyrir knatt-
spyrnuþjálfara að láta hvern ein-
stakan leikmann á vellinum heyra
til sín, þegar verið er að æfa. En
hér kemur tæknin til sögunnar og
leysir vandann. Nokkur knatt-
spyrnufélög erlendis hafa eignast
sérstakt þráðlaust kerfi fyrir þjálf-
ara sína. Hann situr þá hinn róleg-
asti á bek'k, horfir á menn sína leika
og heldur á hljóðnema með annarri
hendi. Allir leikmennirnir eru með
lítið móttökutæki og ef þjálfarinn
þarf að leiðbeina einhverjum sér-
stökum, sendir hann honum skila-
boðin, án þess að það raski æfing-
una eða trufli hina leikmennina.
Þetta er sagt hafa reynzt aldeilis
prýðilega.