Úrval - 01.12.1971, Page 34

Úrval - 01.12.1971, Page 34
1 32 ÚRVAL Hin eina stund í lífi Önnu, sem var verulega dýrðleg, var sú, er hún í júní 1533 var krýnd sem drottning Englands. Öll Lundúnaborg var þakin fánum og blómum. Fólkið var ekki hlið- hollt Önnu, en það sá ekki ástæðu til annars en að halda krýningu hennar hátíðlega, og það notaði tækifærið til að dansa, eta og drekka. Anna fór á fánum skrýdd- um fljótabát upp Thamesána frá Greenwich til Tower of London, þar sem hún dvaldi um nóttina. Næsta morgun var henni fylgt með allri þeirri viðhöfn, sem þjóðin átti framast völ á, gegnum Lundúna- borg til Westminster, þar sem kór- ónan skyldi sett á höfuð henni. Strætin voru troðfull af forvitnum og glensfullum áhorfendum. Það glampaði á gull og skrautklæði skrúðfylkingarinnar í júnísóiinni. Anna sagði síðar svo frá, að borg- in hefði svo sem tekið sér nógu vel, enda þótt hún hefði fáa séð í mann- fjöldanum, sem tóku ofan höfuðföt- in. En hún huggaði sig við þá hugs- un, að hún bæri í skauti sínu erf- ingjann að hásæti Englands, barnið sem Hinrik hafði þráð svo mjög, sem mundi verða henni trygging fyrir því, að staða hennar yrði raun- verulega örugg, þrátt fyrir alla óvini æðri sem lægri. í september fæddist barnið. Það var stúlka. Enn einu sinni stúlkubarn. Hinrik hafði heyrt kvalaóp konu sinnar; hann hafði fundið sárt til með henni í þjáningum hennar. En svo hættu ópin, og þjónn kom til að færa honum þær fréttir, að hann hefði eignazt dóttur. Hann þaut inn til Önnu, sem lá örmagna, og tók að ámæla henni fyrir, hvað hún hefði gert honum. Hann vildi ekki líta á barnið. En er hann komst að raun um að Anna var einnig yfirkomin af harmi, rann honum reiðin og hann faðmaði hana að sér, og sór að hann skyldi aldrei bregðast henni. Þetta barn Hinriks og Önnu var Elísabeth — sem átti eftir að verða hin mikla drottning Elízabeth. Með fæðingu þessa barns var öllu í raun og veru lokið fyrir Önnu, svo skömmu eftir hina dýrðlegu stund hennar. Konungurinn var þegar far- inn að gefa hirðmeyjum drottning- arinnar full mikið auga. Auk þess var nú margt, sem olli konunginum áhyggjum. Vinslitin við Rómversku kirkjuna urðu full- komin. Páfinn hótaði að bannfæra Hinrik, og konungurinn svaraði, að Páfinn væri ekkert meira en biskup Rómaborgar, og hefði engin völd yfir Ensku kirkjunni. Þetta leiddi til blóðsúthellinga í Englandi. Konungurinn neyddist til að senda á höggstokkinn suma hina elztu og fyrrum trúverðugustu ráð- gjafa sinna. Prestar, sem héldu tryggð við Rómversku kirkjuna, voru teknir af lífi. Svo var það Katrín, gamla drottn- ingin, sem lifði í þvingaðri einangr- un sem Dowager prinsessa — en þann titil hafði hún hlotið, er fyrri maður hennar, Arthur, Prinsinn af Wales, hafði dáið, og sem Hinrik gaf henni aftur nauðugri, enda þótt hún neitaði alltaf sjálf að leggja nið-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.