Úrval - 01.12.1971, Blaðsíða 36
34
skrefum. Hinrik hafði tekið ákvörð-
un. Anna var tekin og kastað í Tow-
er of London (Lundúnakastala), í
sömu herbergin, sem hún hafði dval-
ið í nóttina fyrir krýningu sína.
Hún var dregin fyrir rétt og ákærð
fyrir að svíkja konunginn með fjór-
um mönnum, þar á meðal Smeaton
og Norris.
Sagnaritarar neita að skera úr um,
hvort hún var sek eða ekki. Létt-
lynd og sjálfselskufull var hún
vissulega — en í augum nútíma-
manna er engin fullnaðarsönnun um
glæp hennar.
En fyrir Thudorréttinum fundust
nægar sannanir. Hún var sakfelld.
Refsingin var líflát með afhöfðun.
Anna tók því með hugrekki. í Eng-
landi notaði böðullinn öxi. Anna
hafði lifað æsku sína í Frakklandi,
og hún fór fram á, að sér yrði sýnd
sú tillitssemi, að verða höggvin með
sverði, eins og siður var í því landi.
Bæn hennar var veitt. Böðull var
fenginn frá Calais til að framkvæma
aftökuna.
ÚRVAL
Hún gerði að gamni sínu allt til
enda.
Daginn fyrir dauða sinn sagði hún:
„Mér er sagt að böðullinn sé ágæt-
ur — og ég hef mjög grannan háls.“
Ávallt hégómlega, eins og hún var,
tók hún höndunum upp að hálsinum
og brosti.
Hún var hálshöggvin opinberlega,
að viðstöddu ríkisráði konungs. Hún
var klædd flegnum loðskinnsbrydd-
um, gráum kjól. Er hún hafði stigið
upp á aftökupallinn, mælti hún
nokkur orð. Að því loknu kraup
hún á kné, og bundið var fyrir augu
henni. Er hún hafði lagt höfuðið á
höggstokkinn mælti hún hvað eftir
annað:
„Ó, guð, vertu sál minni náðugur!1'
unz sverðshöggið reið.
Ellefu dögum síðar gekk Hinrik að
eiga Jane Seymour. Samt sem áður
er nafn Önnu Boleyn að eilífu tengt
nafni Hinriks, fyrir hina miklu dótt-
ur þeirra, Elísabethu.
En ihve það er einkennilegt, að margir nota orðatiltækið „Æ, maður
lifir aðeins einu sinni!“ sem afsökun til þess að kasta lífinu á glæ!
Bill Gopland.
Sérfræðingur er maður, sem veit ekki öll svörin, en er viss um, að
hann gæti fundið þau, ef honum væri veitt nóg fé til þess.
Rex Fletcher.
Lof er aðferð til þess að fá menn til þess að eiga lof skilið.
Franklin P. Jones.
Það eina, sem er að barnasálarfræði, er það, að börn skilja hana ekki.