Úrval - 01.12.1971, Blaðsíða 119
WALT DISNEY
117
borganna. Það þarf að byrja á nýjan
leik á nýjum, ónumdum stað og
byggja þar borgarsamfélag, sem
getur orðið fyrirmynd að borg fram-
tíðarinnar."
Hann bað nú nokkra starfsmenn
sína um að hefjast handa með að
tryggja eignarhald á 27.500 ekru
landflæmi nálægt bænum Orlando í
Floridafylki og hóf strax að skipu-
leggja svæði þetta. Einri morguninn
kom hann í skrifstofur hönnunar-
fyrirtækis síns, WED Enterprises,
með uppdrátt að splunkunýrri borg,
sem hann hafði teiknað á munn-
þurrku.
Hann kallaði borg þessa EPCOT,
en þar er um að ræða upphafsstafi
orðanna Experimentan Prototype
Community of Tomorrow (Tilrauna-
fyrimyndarborgarsamfélag fram-
tíðarinnar). Borg þessi átti að teygja
sig í allar áttir út frá loftkældum
miðborgarkjarna, líkt og spælar í
risavöxnu hjóli. Öll umferð til og
frá miðborginni og um hana átti að
verða neðanjarðar. Neðst átti að
verða brautir fyrir vörubila, sem
flytja áttu vörur til og frá borginni.
Þar fyrir ofan áttu svo fólksbílar að
aka. Þar áttu ekki að verða nein
umferðarljós. Þar fyrir ofan átti
svo að vera rými fyrir fótgangandi
fólk, sem ferðast átti með eintein-
ungum eða hreyfanlegum gang-
stéttum og gangstígum, sem líkjast
mundu færiböndum.
Sú borg, sem Walt hafði í huga,
yrði aldrei fullgerð, heldur yrði þar
sífellt komið fram með nýjar hug-
myndir og tækni og tilraunir gerð-
ar á því sviði. „Þessi borg mun
alltaf verða að þróast; hún mun stöð-
ugt verða að skapast. Hún mun
aldrei hætta að verða uppdráttur
að framtíðinni, þar sem fólk lifir í
raun og veru lífi, sem það getur
ekki lifað á neinum öðrum stað enn
sem komið er,“ sagði hann.
Walt komst oft að því, að það eina,
sem hindraði, að draumar hans gætu
rætzt, var hið stirðnaða kerfi úr-
eltra byggingarsamþykkta og ann-
arra samfélagssamþykkta sem hindr-
uðu iðnaðinn í að koma á þeirri
byltingu, sem hann væri annars fær
um að koma á. Lausn þessa vanda
fannst með samþykkt fimm laga-
frumvarpa á fylkisþingi Florida, en
samþykkt þeirra skapaði „hið full-
valda ríkis Disneys", eins og einn
fylkisþingmaðurinn orðaði það.
Þessi nýja löggjöf veitti fyrirtæki
Disneys í rauninni algert vald yfir
heilum hrepp og þar á meðal rétt
til þess að semja sína eigin bygg-
ingarsamþykkt. Þannig hafa tvö ný
hreppsfélög, Seflækur (Reedy
Creek) og Flóvatn (Bay Lake), vald
til þess að nota nýja byggingartækni
og ný byggingarefni og að leyfa
byltingarkennda þróun, sem for-
ráðamönnum fárra annarra borga
mundi jafnvel detta í hug að leyfa
nokkurn tíma, enda eru heiztu að-
stoðarmenn Disneys meðal hrepps-
nefndarmanna.
Walt dreymdi einnig um að koma
á laggirnar við hlið þessarar nýju
framtíðarborgar sérstöku iðnaðar-
svæði, sem ná skyldi yfir 1000 ekr-
ur, sem verða átti „lifandi sýningar-
gluggi fyrir tækniþekkingu og kunn-
áttu amerísks iðnaðar“. Og rúsínan
í pylsuendanum átti svo að verða
2500 ekru skemmti- og orlofssvæði,