Úrval - 01.12.1971, Blaðsíða 124
122
ÚRVAL
Dr. Birren segir enn fremur: „Hin 95% munu að vísu finna
einhverja breytingu á minni sínu, er aldurinn sækir á, en ekki
svo mikla, að ekki megi bæta fyrir liana með betri aðferðum
við skráningu, varðveizlu og leit í „skjalaskápum“ minnisins.
Hvað er minnið i raun og veru? Hvernig vinnur það?
Minni er tengt námi og' lærdómi á mjög náinn hátt, þ. e. þetta
tvennl er samrunnið. En erfitt er að segja til um, hvar annar
þáttur þessa hugarstarfs endar og hinn tekur við. Skilyrði fyrir
því, að þú munir eitthvað, er, að þú hafir einhvern tíma lært
það, fengið vitneskju um það, og ekki er hægt að segja, að þú
hafir lært um visst atriði, fyrr en þú hefur komið því fyrir til
geymslu í minni þínu. Margir sálfræðingar reyna að forðast
ranga skilgreiningu og aðgreiningu með því að tala um þrjú
stig þessarar starfsemi: skráningu atriðisins í geymsluhólfum
minnisins, varðveizlu þess þar og síðan leitina að þessu atriði
og fund þess. I þessum skilningi má segja, að fyrsta stigið, skrán-
ing atriðisins, feli í sér alla þá andlegu starfsemi, sem nauðsyn-
leg er til þess að fá vitneskju um eitthvert atriði og koma því
fyrir til geymslu í geymsluhólfum minnisins.
Varðveizla atriðisins getur verið til bráðabirgða eða til fram-
búðar. Ein þýðingarmesta uppgötvun sálarrannsókna, sem ný-
lega hafa átt sér stað, er sú, að um er að ræða algerlega ólíka
lieilastarfsemi, eftir því hvort miðað er að varðveizlu atriðisins
til bráðabirgða eða frambúðar. Tilraunir sýna, að það krefst
orkueyðslu að muna eitthvað í stuttan tíma. Varðveizla minnis-
atriða til bráðabirgða er með öðrum orðum virk heilastarfsemi.
En á vissu augnabliki flyzt minnisatriðið annað livort í
geymsluhólf lil varanlegrar varðveizlu eða ])að hverfur úr
minninu. Tilraunir benda til þess, að þetta gerist venjulega inn-
an ldukkustundar frá því að alriðið berst minninu. Varanleg
varðveizla minnisatriðisins krefst lítillar eða engrar orku, og
er þar líklega um að ræða örlitlar breytingar nálægt heilafrum-
um eða í uppbyggingu þeirra sjálfra. Minnisatriðið verður þess
vegna að greypast í heilann, ef það á að geta geymzt í meira