Úrval - 01.12.1971, Blaðsíða 100
98
ÚRVAL
inni búinn að ganga sér til húðar.
Og Walt og starfsfólk hans hafði nú
byrjað á nýjum teiknimyndaflokki
sem nefndist „Oswald, heppni kan-
ínukarlinn". Oswald varð strax mjög
vinsæll meðal kvikmyndahúsgesta.
En sú árátta Walts, að vilja sífellt
ná meiri fullkomnun, var smám
saman að setja fyrirtækið á haus-
inn. Mintz borgaði vel fyrir hverja
mynd í þessum nýja teiknimynda-
flokki, þ.e. 2250 dollara fyrir hverja
mynd, en Walt byrjaði nú á nýjum
og dýrum starfsaðferðum. Hann
gerði fyrst eins konar ,,uppkast“ að
hverri mynd, þ.e. tilraunamynd.
Hann tók myndir af ófullgerðum
teikningurn af ýmsum þáttum at-
burðarásarinar, svo að hann gæti
athugað allar hreyfingar nánar og
lagað alla galla, áður en teikning-
arnar voru svo fullunnar á celluloid.
Og hann tapaði nú fé á hverri
kvikmynd.
í augum Walts var lausnin ofur
einföld, meira lánsfé og þannig
meira rekstrarfé. En Mintz var ým-
ist ósamvinnuþýður eða fór undan í
flæmingi, er slík efni bar á góma.
Walt var ákveðinn í að gera út um
málið með því að tala við Mintz
sjálfan og hélt því til New York
ásamt Lilly.
„Ég vil gera Oswald mannlegri en
hann er,“ sagði Walt við Mintz, þeg-
ar þeir hittust. „Ég vil ráða fleiri
afburðamenn, sem búa yfir nýjum
og snjöllum hugmyndum."
„Hvers vegna viltu gera allar
þessar breytingar, fyrst myndirnar
ganga svona vel?“ spurði Mintz.
„Nýjar hugmyndir kosta peninga.
Við viljum að teiknimyndirnar kosti
minna, en ekki meira. Ef um frek-
ari samninga yrði að ræða, gætum
við alls ekki borgað meira en 1800
dollara fyrir hverja Oswaldmynd.“
„Jæja, fyrst svo er, býð ég ein-
hverju öðru fyrirtæki Oswaldmynd-
irnar,“ svaraði Walt.
„Þú býður hvorki einum né nein-
um Oswaldmyndirnar,“ sagði Mintz
þá. „Þú átt ekki Oswald."
Walt varð alveg þrumulostinn. í
fyrstu hafði Mintz boðizt til þess að
sækja um einkarétt á Oswaldmynd-
unum. Disneybræður höfðu þegið
það og haldið, að Mintz ætlaði þann-
ig að taka af þeim skriffinnsku
ómak. Nú komust þeir að hinum
beiska sannleika. Oswald tilheyrði
nú Mintz einum. Og Mintz hafði
jafnvel verið að ráða marga af
starfsmönnum Walts í sína eigin
þjónustu undanfarið til þess að
tryggj a sér möguleika á að hefja
sjálfur framleiðslu Oswaldmynda,
þegar hann mundi vanta nýjar
myndir.
„Þú ert helzt til dýr fyrir okkur,“
sagði Mintz við hann að síðustu.
„Héðan í frá gerum við kvikmyndir
án þinnar aðstoðar."
Walt hélt bálreiður heim í gisti-
hús sitt, en þar beið Lilly hans. „Ég
er atvinnulaus, og ég er feginn því!“
sagði hann við hana. „Ég skal aldrei
vinna fyrir aðra héðan í frá.“ Síðan
sendi hann Roy svohljóðandi skeyti
og skeytið einkenndist af sömu ó-
bugandi bjartsýninni, sem var svo
ríkur þáttur í eðli hns: ALLT í
LAGI ER AÐ KOMA HEIM. Hann
var sannfærður um, að honum
mundi á einhvern hátt takast að
finna upp einhverja teiknimynda-