Úrval - 01.12.1971, Qupperneq 54
52
ÚRVAL
„Star Tiger“ horfin með farþegum
og áhöfn.
Að líkindum hefði ekki orðið
meira umtal um þetta mál, ef annað
svipað slys hefði ekki átt sér stað
tæplega ári seinna, sem ýfði upp
þennan harmleik að nýju, það var
flugvélin „Star Ariel“ frá sama fé-
lagi.
Áður en lagt var af stað, hafði
flugstjórinn I. C. MacPhee, fullviss-
að sig um hjá veðurfræðingunum,
að veðurútlitið væri ágætt. Einnig
hafði vélin verið nákvæmlega yfir-
farin. En þrátt fyrir það náði „Star
Ariel“ ekki ákvörðunarstað, sem
var Kingston á Jamaica. MacPhee
flugstjóri hafði í radioviðtali sagt
frá því, að skyggni væri ágætt, og
allt gengi eftir áætlun. En hérum-
bil 200 sjómílum suðuvestur af Ber-
munda, rofnaði allt radiosamband
við „Star Ariel“. Víðtæk leit var
hafin, en allt kom fyrir ekki, það
fannst ekki tangur né tegund af
vélinni. Aðstæðurnar voru merki-
lega líkar „Star Tiger“ slysinu.
Skýrsla leitarstjórnarinnar endaði
á þessa leið: Vegna sannanaskorts,
og sökum þess að enginn hlutur úr
vélinni hefir fundizt, er orsök slyss-
ins óþekkt. Á einu ári voru tvær
flugvélar og 53 menn gersamlega
horfið á Þríhyrningi dauðans.
MÁLIÐ VERÐUR
SÍFELLT DULARFYLLRA
Þann 17. október 1954 hvarf am-
erísk flugvél af gerðinni Super
Constellation með 42 mönnum inn-
anborðs skammt norður af Ber-
munda. Heill her af skipum og
flugvélum tók þátt í leit að flug-
vélinni, en án minnsta árangurs.
Á fimm ára tímabilinu frá 1961—
1965 fórust gersamlega 198 skip
meira en 5000 lestir, þar af hurfu 5
gersamlega á Þríhyrningi dauðans,
gildir sama máli um skip sem þarna
farast, þeir voða viðburðir eru
leyndardómnum huldir.
Annan febrúar 1963 fórst olíu-
flutningaskipið „Sulphur Queen“
gjörsamlega.
Nokkrum mánuðum seinna hvarf
fiskiskipið „Sono Boy“ með 40
manns innanborðs á leið til Jamaica.
í tvær vikur fór fram nákvæm leit
á því svæði sem álitið var að „Sono
Boy“ hefði farizt en allt árangurs-
laust.
Margir svipaðir harmleikir hafa
átt sér stað á þríhyrningnum, og
ávallt á sama veg, engin vegsum-
merki finnanleg, harmleikurinn hul-
inn óhugnanlegri leynd.
HVAÐ ER ÞAÐ SEM SKEÐUR?
Það er óhugsanlegt að flugvél geti
steypst í hafið og sokkið á fáeinum
mínútum. Hitt er óskiljanlegra að
skip snarsökkvi þannig, að skip-
verjar geti ekki áttað sig á því hvað
er að ske. Það sem menn vilja fá
svarað, bæði þegar um flugvél og
skip er að ræða, af hverju þetta
skeður svo snögglega, að ekki tekst
að senda út neyðarskeyti fyrr en um
seinan. Hugsanlegt er, segja menn,
að um sé að ræða neðansjávar eld-
vörp, sem hafa opnast og sogið svo
gífurlegt magn af sjó, að af því
myndist ómótstæðilegt sog sem allt
gleypi sem í námunda er. En þessi
kenning hefir heldur ekki vakið
tiltrú.